Nýtt á skrá! Brekkugata 1 Garðabæ
Glæsileg 3ja herb. íbúð (möguleiki að bæta við fjórða svefnherberginu) með stórum stofum, vönduðu nýlegu eldhúsi og tvennum veröndum. Aukin lofthæð er í íbúðinni og fallegt útsýni til fjalla. Bílastæði í bílakjallara og rúmgott þvottaherbergi inn af íbúð.
Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynnir afar glæsilega 109,4 fermetra 3ja herbergja íbúð á 1. hæð (merkt íbúð 201) með tvennum veröndum til suðurs og norðurs við Brekkugötu 1 í Garðabæ. Fallegt lyftuhús byggt árið 2019. Íbúðin er björt og virkilega vel skipulögð þar sem glæsilegt endurnýjað eldhús er staðsett í miðju alrými með borðstofu og setustofu sitthvoru megin í alrýminu. Stór afgirt verönd til suðurs og önnur verönd frá eldhúsi með fallegu útsýni til fjalla. Vandað eldhús með stórri eldhúseyju með steini á borðum, niðurteknu lofti með innfelldum ljósum og Siemens Studio Line eldhústækjum. Góð svefnherbergi með skápum. Rúmgott þvottaherbergi er staðsett inn af eldhúsi. Myndavéladyrasími er í húsinu.
Um er að ræða afar fallega íbúð á eftirsóttum stað við Brekkugötu í Garðabæ. Útsýni frá íbúðinni er fallegt til norðurs að Esjunni. Lóðin er vel hirt með tyrfðum flötum og stéttum með snjóbræðslu. Rafhleðslustaurar á lóðinni og sameiginleg bílastæði.
Staðsetning er virkilega góð þar sem stutt er í verslanir, veitingastaði, kaffihús, leikskóla (Urriðaból I og Urriðaból II), grunnskóla (Urriðaholtsskóla) og glæsileg útivistarsvæði. Oddur golfvöllur, Urriðavatn og Heiðmörk í göngufjarlægð.
Nánari lýsing: Forstofa: Er rúmgóð, með harðparketi á gólfi og góðum háum skápum.
Eldhús: Var endurnýjuð fyrir u.þ.b. 3 árum síðan. Falleg ljós eldhúsinnrétting með stórri eldhúseyju og steini á borðum. Harðparket á gólfum. Siemens Studio Line bakaraofn, spansuðu helluborð, Siemens uppþvottavél, innbyggður Samsung kæliskápur með frysti. Eldhús er opið við setustofu og borðstofu og með útgengi á verönd I.
Verönd I: Snúa til norðurs og er afgirt að hluta. Fallegt útsýni til fjalla (Esjunni).
Setustofa: Er rúmgóð með harðparketi á gólfi og gluggum til suðurs. Stofa er með útgengi á verönd II.
Verönd II: Er stór, afgirt og snýr til suðurs.
Borðstofa: Er rúmgóð með harðparketi á gólfi og gluggum til norðurs með fallegu útsýni.
Baðherbergi: Með flísum á gólfi og hluta veggja. Flísalögð sturta með glerþili, falleg innrétting við vask og skápum fyrir ofan. Upphengt innbyggt salerni og handklæðaofn.
Hjónaherbergi: Er rúmgott með harðparketi á gólfi, góðum skápum og glugga til suðurs.
Svefnherbergi II: Með harðparketi á gólfi, skápum og glugga til suðurs/austurs.
Þvottaherbergi: Er rúmgott og er staðsett inn af eldhúsi (falið bakvið eldhúsinnréttingu). Flísar á gólfi og góð innrétting (hækkun undir þvottavél og þurrkara). Vaskur og gluggi til austurs.
Sérmerkt bílastæði: Er staðsett í bílakjallara.
Sérgeymsla: Í kjallara sem er 7,6 fermetrar. Málað gólf.
Í sameign er aðgengi að: Sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu sem er snyrtileg með máluðu gólfi. Stigagangur og sameign er mjög snyrtileg.
Um er að ræða frábæra staðsetningu í Urriðaholti í Garðabæ þar sem stutt er í fallegar göngu- og hjólaleiðir. Allar nánari upplýsingar veita:
Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali í 849-0672 / heimir@fastlind.is