LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali kynnir virkilega fallega og vel skipulagða 3.herbergja íbúð á 1..hæð (jarðhæð frá götu) með útgengi út á ca 12 m2 timburverönd með skjólveggjum til suð-vesturs. Eignin samanstendur af tveimur svefnherbergjum, baðherbergi, stofu, eldhúsi... Sýna meira
LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali kynnir virkilega fallega og vel skipulagða 3.herbergja íbúð á 1..hæð (jarðhæð frá götu) með útgengi út á ca 12 m2 timburverönd með skjólveggjum til suð-vesturs. Eignin samanstendur af tveimur svefnherbergjum, baðherbergi, stofu, eldhúsi, þvottahúsi og geymslu. Samkvæmt Þjóðskrá Íslands er íbúðarhlutuinn skráður 74,6 m2 auk 6,8 m2 geymslu.Fasteignamat 2023: 55.100.000 krNánari lýsing.Forstofuhol með parketi á gólfi.Eldhús með hvítri innréttingu á tvo vegu með flísum á milli skápa, gert er ráð fyrir ísskáp og uppþvottavél í innréttingu, Siemens ofn og helluborð, Stofa/borðstofa með parketi á gólfi og útgengi út á timburverönd til suð-vesturs. Eldhús með hvítri innréttingu á tvo vegu með flísum á milli skápa, gert er ráð fyrir ísskáp og uppþvottavél í innréttingu Hjónahergið er rúmgott með parketi á gólfi og hvítum fataskáp.Barnaherbergi er innaf stofu með parketi á gólfi og hvítum fataskáp.Baðherbergi með flísalögðu gólfi og veggjum að hluta, með fallegri hvítri innréttingu, handklæðaofn og rúmgóð walk in sturta. Þvottahús með hvítri innrétting fyrir vélar í vinnuhæð.Geymsla í sameign með hillu og sameiginlega hjóla og vagnageymsla.Húsgjöld eignarinnar eru 9.929 kr á mánuði, innifalið í húsgjöldum er allur almennur rekstur húsfélags, hitakostnaður, húseigandatrygging, rafmagn í sameign, þrif sameignar og sorpgeymslu.Húsið Brekkugata 1-3: Húsið er staðsteypt, einangrað að utan og klætt með sléttri ál og báruklæðningu á efri hæðum en jarðhæð er múrhúðuð og máluð. Meginþorri milliveggja eru steinsteyptir. Álklæddir timburgluggar. Lyfta, útidyr með rafmagnsopnun, í anddyrum eru póstkassar og myndavéladyrasími. Á fyrstu hæð eru geymslur fyrir íbúðir ásamt reiðhjólastæðum. Hverfið:Urriðaholt er nýlegt hverfi í Garðabæ með blandaðri byggð íbúða og þjónustu, verslunum, skólum, heilsugæslu og íþróttamannvirkjum sem nokkuð sé nefnt. Urriðaholt er þéttbýli í náinni tengingu við nokkur af helstu útivistarsvæðum höfuðborgarsvæðisins, ósnortna náttúru og góðar samgönguæðar. Urriðaholtsskóli, sem er leik- og grunnskóli, er rétt fyrir ofan. Kauptún er svo þjónustukjarni í göngufæri við íbúðabyggðina. Þar eru meðal annars verslanirnar Costco, Ikea, Bónus og Vínbúðin.Allar upplýsingar um eignina veitir Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 822 2123 eða