Fasteignasala Sauðárkróks býður til sölu fasteignina við Brekkugötu 1, Sauðárkróki ásamt tilheyrandi lóðarleiguréttindum. Um er að ræða einbýlishús á tveimur hæðum alls 125,8 fm. byggt árið 1935. Neðri hæðin er steypt en efri hæð er byggð úr timbri, hvor hæð er 62,9 fm. Leigulóð hússins er 544 fm.
Á neðri hæð eru tvö herbergi, þvottahús, baðherbergi, snyrting og forstofa. Á efri hæð eru tvö herbergi, stofa og eldhús. Vatnstjón varð í eigninni fyrir nokkrum árum síðan.
Fasteignin þarfnast mikils viðhalds. Áhugasamir eru hvattir til að kynna sér ástand hússins vel.
Nánari upplýsingar er að fá hjá Fasteignasölu Sauðárkróks í síma 453 5900 eða á netfangið fasteignir@krokurinn.is Sunna Björk Atladóttir lögmaður og löggiltur fasteignasali Eva Dögg Bergþórsdóttir löggiltur fasteignasali Ella Magga aðstoðarmaður fasteignasala