LIND fasteignasala og Páll Konráð kynna í einkasölu: einstaklega falleg og vel skipulögð 3ja herbergja 95,2 fm íbúð á 3.hæð (efstu) með um það bil 17 fm svölum (ekki inn í skráðri fm tölu) í mjög góðu, eftirsóttu, fjölbýli innst í lokaðri götu í Víkurhverfi Grafarvogi.
Nánari upplýsingar gefur Páll Konráð, Löggiltur fasteignasali, S:820-9322, pall@fastlind.is.Nánari lýsing:Forstofa með miklum eikarskápum, flísar á gólfi.
Eldhús með borðkrók, falleg innrétting með innbyggðum ísskáp sem fylgir, flísar á gólfi.
Borðstofa/stofa er í opnu og fallegu rými með útgengt á mjög stórar flísalagðar suðvestur svalir með útsýni á Úlfarsfell og Bláfjöll.
Baðherbergi flísalagt með baðkari, sturtu og innréttingu.
Þvottahús er sér innan íbúðar með hvítlakkaðri innréttingu og vaski.
Hjónaherbergi er með góðum fataskápum, parket á gólfi.
Barnaherbergi er rúmgott með góðum fataskáp, parket á gólfi.
Sérgeymsla á jarðhæðinni (1.hæð) og sammeiginleg hjólageymsla. Þrjár sameiginlegar rafmagnshleðslustöðvar fyrir húsið.
Framkvæmdir síðustu ára samkvæmt seljanda:
2023: skipt um einn gluggan innan íbúðar, þrjá aðra á jarðhæð hússins.
- Þak háþrýstiþvegið og málað.
2024:
Gluggalistar á framhlið og hlið hússins málaðir.
2025:
Einn nýr gluggi á 2.hæð hússins.Örstutt í alla skóla, alla verslun og þjónustu í Spönginni, Golfvöllinn, Egilshöllina og fl. Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við:
Páll Konráð, löggiltur fasteignasali, sími 820-9322, pall@fastlind.is
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Lind fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati, lögaðili greiðir 1,6%
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.