Brattakinn 15 – Vel staðsett einbýlishús í Kinnunum, HafnarfirðiUm er að ræða vel staðsett einbýlishús á eftirsóttum stað í Kinnunum í Hafnarfirði. Eignin er skráð 143 fm samkvæmt fasteignaskrá og var byggð árið 1950, en hefur verið stækkuð og endurbætt í gegnum árin.
Frábær staðsetning þar sem stutt er í alla helstu þjónustu. Leikskóli og grunnskóli eru í göngufæri og miðbær Hafnarfjarðar er einungis í um 10 mínútna göngufjarlægð.
Framkvæmdir síðustu ára (samkvæmt seljendum):Nóvember 2024: Lagnakjallari undir húsinu styrktur og jafnaður.
Nóvember 2024: Baðherbergi endurnýjað að fullu, þar með talið lagnir, tæki, innréttingar og flísalögn.
Nóvember 2024: Rafmagn endurnýjað og lagt upp á nýtt fyrir þvottavél og þurrkara.
Nóvember 2024: Nýtt gólfefni lagt á öll rými, að undanskilinni forstofu.
Nóvember 2024: Skipt um ofna í einu herbergi og í forstofu.
(samkvæmt fyrrum eigendum): Skipt var um járn á þaki fyrir um 3–4 árum.
Nánari lýsing:Komið er inn í forstofu og þaðan inn í bjart og opið alrými sem samanstendur af eldhúsi, stofu og borðstofu. Eldhúsið er rúmgott með góðu skápa- og vinnuplássi. Útgengt er úr alrými út á rúmgóða suðurverönd.
Frá gangi/holi er aðgangur að þremur svefnherbergjum. Baðherbergi hefur nýlega verið endurnýjað á smekklegan hátt og er með sturtuaðstöðu í baðkari, fallegri innréttingu, handklæðaofni og glugga. Einnig er góð aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara.
Í kjallara er rými með takmarkaða lofthæð ásamt lagnakjallara.
Garðurinn er rúmgóður og gróinn með fallegum gróðri og stórum sólpöllum sem snúa vel gagnvart sólu. Eignin er staðsett í rólegu og fjölskylduvænu hverfi.
Nánari upplýsingar veitir:
Stefán Rafn Sigurmannsson s.655-7000 eða stefan@as.is
Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is