Ásmundur Skeggjason fasteignasali kynnir fallegt og vel skipulagt parhús á eftirsóttum stað í miðbænum með aukaíbúð. Frábær fjárfesting. Skoðaðu 3 D myndir af eigninni hér Um er að ræða glæsilegt og mikið uppgert 105 fm parhús á einum besta stað í miðbæ Reykjavíkur. Eignin er á þremur hæðum sem skiptast upp í tvær hæðir sem eru ein eining og
síðan í studíoíbúð í risi. Húsið er í mjög góðu ásigkomulagi, mikið endurnýjað og virkilega skemmtilega hannað við endurbætur. Búið er að gera stiga milli kjallara og miðhæðar sem tengir rýmin skemmtilega saman. Eldhús, bæði baðherbergin og annað í eigninni endurnýjað. Hluti risíbúðar er undir súð og gólfflöturinn því stærri en skráðir fermetrar. Frábær eign fyrir þá sem vilja gamlan stíl í bland við nýjan og leigutekjur með. Allar upplýsingar Ásmundur Skeggjason fasteignasali, as@hofdi.is, Gsm 895 3000.-
Nánari lýsing:Stofa: Opin og björt stofa, flotað gólf, gengið niður í stofu/herbergi jarðhæð niður nýjan stiga.
Eldhús: Eldhúsið er smekklega endurnýjað með nýjum tækjum, setubekk og opnu seturými.
Stofa kjallari: gengið niður úr stofu efri hæðar niður í stofu jarðhæðar þar sem stofan virkar eins og forherbergi. Flotað gólf.
Herbergi: Rúmgott herbergi, flotað gólf.
Baðherbergi: Stórt og gott baðherbergi með sturtu, upphengdu salerni og flísum við sturtu en annars flotað gólf. Flísalagðir veggir að hluta.
Risherbergi: opið rými með gluggum í tvær áttir, snyrtilegri lítilli eldhúseiningu, innbyggðum skápum undir súð. Flotað gólf. Baðherbergi fylgir risherbergi en gegnið er inní það af efsta stigapalli. Baðherbergi var tekið í gegn og er með frístandandi baði, upphengdu salerni, flísar á hluta veggja, flotað gólf.
Nánari upplýsingar veitir: Ásmundur Skeggjason, asi@hofdi.is, Gsm 8953000