---------Bræðraborgarstígur 43 - opið hús - þriðjudaginn 27. apríl milli kl. 17:00 og 17:30---------Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu virkilega fallega, bjarta og þó nokkuð mikið endurnýjaða 119,3 fermetra 3ja herbergja íbúð á tveimur hæðum, jarðhæð og kjallara, í nýlega viðgerðu... Sýna meira
---------Bræðraborgarstígur 43 - opið hús - þriðjudaginn 27. apríl milli kl. 17:00 og 17:30---------Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu virkilega fallega, bjarta og þó nokkuð mikið endurnýjaða 119,3 fermetra 3ja herbergja íbúð á tveimur hæðum, jarðhæð og kjallara, í nýlega viðgerðu og steinuðu fjölbýlishúsi við Bræðraborgarstíg í Reykjavík. Bæði er sérinngangur í íbúðina og sameiginlegur um stigahús. Eignin er laus til afhendingar nú þegar.Jarðhæðin er mjög björt með aukinni lofthæð og stórum gluggum. Góður stigi er á milli hæða og kjallarinn er með gluggum til suðurs. Suður og vesturhliðar hússins voru allar viðgerðar og steinaðar upp á nýtt árið 2019 og er húsið í góðu ástandi. Klóaklagnir undir húsi og út í götu voru endurnýjaðar árið 2019 og drenlagnir á sama tíma. Gler og gluggar voru endurnýjuð fyrir um 15 árum síðan og eru í góðu ástandi. Íbúðin var öll innréttuð fyrir um 15 árum síðan og þá var m.a. skipt um eldhúsinnréttingu (tæki eru þó nánast ný), baðherbergi, gólfefni, raflagnir og töflu, ofna og ofnalagnir, fataskápa, innihurðir o.fl. Lýsing eignar:Jarðhæð sem er 60,1 fermetri að stærð skiptist þannig:Forstofa, flísalögð og með fataskápum.Stofa, stór, björt og parketlögð með miklum frönskum gluggum til suðurs og vesturs og útgengi á verönd til vesturs.Eldhús, opið við stofu, flísalagt og með fallegum innréttingum úr kirsuberjaviði með flísum á milli skápa og tengi fyrir uppþvottavél. Nýleg eldavélasamstæða er í eldhúsi.Hjónaherbergi, parketlagt og stórt með fataskápum.Gengið er niður á neðri hæð íbúðarinnar, sem er 59,2 fermetrar að stærð, um fallegan viðarstiga.Sjónvarpshol, flísalagt og rúmgott með gluggum til suðurs.Baðherbergi, er stórt og með gluggum. Flísalagt gólf og veggir, innrétting, veggskápar, handklæðaofn, hornbaðkar með sturtuaðstöðu og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.Barnaherbergi, parketlagt og rúmgott. Geymsla, rúmgóð með hillum og lökkuðu gólfi. Geymsla, undir innistiga.Húsið að utan er í góðu ástandi, suður og vesturhliðar þess voru viðgerðar og steinaðar upp á nýtt árið 2019. Gler og gluggar hafa verið endurnýjuð, sem og klóaklagnir undir húsi og út í götu, drenlagnir, raflagnir og tafla, ofnar og ofnalagnir.Staðsetning eignarinnar er góð á eftirsóttum stað í vesturbænum þaðan sem stutt er í leikskóla, skóla, Sundlaug Vesturbæjar, Melabúðina, Háskóla Íslands o.fl. Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu