Fasteignasalan Garður
Díana og Hulda löggiltir fasteignasalar hjá fasteignasölunni Garður kynna til sölu
einbýlishús á einni hæð í Ytri Njarðvík með 5 svefnherbergjum, 36,6 fm bílskúr, suðursólpalli, heitum potti og grónum garði.Eignin er skráð sem hér segir hjá FMR:
F 209-2956, birt stærð 189,8 fm.Rúmgott og vel skipulagt einbýlishús á rólegum og fjölskylduvænum stað í Ytri Njarðvík, Reykjanesbæ.
Eignin er vel staðsett, stutt er í alla almenna þjónustu, leik-, grunn- og framhaldsskóla og útivist.
Inngangur: Bjartur og opinn fer inn í opið rými sem er nýtt sem sjónvarpshol.
Sjónvarpshol: Opið rými frá inngangi, útgengi í garð frá svalahurð, eldhús og svefnherbergjagang. Möguleiki að opna inn í stofu.
Eldhús: Bjart með góðri eldhúsinnréttingu með miklu skápaplássi, Bosh ofn og helluborð og eldhúsborðkróki. Inn af eldhúsi er þvottahús. Frá eldhúsi er opið í stofu.
Þvottahús: Stórt og bjart með glugga og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Inntak fyrir heita og kalda vatnið, rafmagnstafla.
Stofa: Stór og björt, nýtt núna sem dagheimili hjá tveimur dagmömmum. Úr stofu er útgengi sem fer í garðinn við hlið hússins sem er lokað af. Gengið inn í eldhús frá stofu. Möguleiki að opna inn í sjónvarpshol.
Hjónaherbergi: Stórt, bjart og rúmgott með miklu skápaplássi.
4 Herbergi: Fjögur herbergi sem eru samnýtt sem tvö stór og björt unglingaherbergi í dag.
Baðherbergi: Baðherbergi með fallegri innréttingu með handlaug, "walk in" sturtu, hornbaðkar, handklæðaofn og upphengdu salerni
Bílskúr: Rúmgóður og bjartur með gluggum á hliðum. Heiti potturinn er með pottastýringu sem er við inngang. Nýleg rafmagnstafla. Hleðslustöð 22kw. Hiti í planinu.
Garður að aftan: Útgengi út á stóran og skjólsælan suðursólpall með heitum potti. Fallegur og gróinn garður.
Viðhald samkvæmt eiganda2018 Viðhaldsfríir gluggar og hurðar frá gluggavinum
2019 Skipt um klæðingu á ytra byrði húss.
2025 Þak endurnýjað.
2026 Tengi fyrir rafbíl.
Það á eftir að fara í þakskyggni og klára að klæða bílskúr.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
www.fastgardur.is | Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður