ÁRBORGIR SELFOSSI S 482 4800 kynna í einkasölu:Vel skipulagðar raðhúsaíbúðir í byggingu í nýju hverfi í Reykholti í Bláskógabyggð.
Húsið er timburhús klætt að utan með lituðu báruáli, þak er kraftsperru og klætt með lituðu járni.
Íbúðirnar eru 90,8m2 að stærð og skiptast skv teikningu í anddyri, þvottahús, baðherbergi, 3 svefnherbergi, stofu og eldhús.
Eignirnar afhendast tilbúnar að utan og fokheldar að innan skv skilalýsingu, lóð skilast grófjöfnuð.
Afhending á fokheldu húsi er í janúar 2026
Verð íbúða, endahúsin eru á 32.400.000 og miðjuhúsin á 31.400.000,-
Mögulegt er að fá húsin lengra komin eftir nánara samkomulagi.
Nánari upplýsingar á skrifstofu Árborga.
arborgir@arborgir.is