****EIGNIN ER SELD MEÐ FYRIRVARA****
Hrafnkell Pálmi kynnir þessa björtu og vel skipulögðu fjögurra herbergja íbúð í vel viðhöldnu húsi.
Eignin hefur verið nýtt með 3 svefnherbergjum og auðvelt er að bæta þriðja svefnherberginu við núverandi mynd.
Góð eign á frábærum stað þar sem stutt er í verslun og þjónustu og leikskólinn Stakkaborg og Háteigsskóli í næsta nágrenni.Íbúð á 1. hæð merkt 101.Bókaðu skoðun:Hrafnkell P. H. Pálmason LGF. / 690 8236 / hrafnkell@fastlind.is.Nánari lýsing:
Anddyrið er með opnu fatahengi og parket á gólfi.
Eldhúsið (endurnýjað 2017) er með góðri innréttingu með miklu skápaplássi og vinnurými, spanhelluborð með viftu yfir, bakarofn í góðri vinnuhæð, uppþvottavél og ísskápur sem fylgja með við sölu. Flísar á gólfi. Gluggi til austurs.
Stofurnar eru samliggjandi, opnar og bjartar með útgengt á stórar svalir til suðvesturs. Parket á gólfi. Stórir gluggar til suðvesturs.
Svefnherbergi I er rúmgott með góðum skápum og glugga til suðvesturs. Parket á gólfi.
Svefnherberg II er með fataskápum með hengi fyrir og glugga til norðausturs. Parket á gólfi.
Baðherbergið flísalagt í hólf og gólf með upphengdu salerni, vaskaskápur, handklæðaofn og baðkar með sturtuaðstöðu með gleri. Gluggi með opnanlegu fagi til norðausturs.
Þvottahúsið er snyrtilegt og er í kjallar þar sem fjórar íbúðuðir deila rýminu og hver með sínar vélar. Einnig er stórt þurrkherbergi við hliðina á þvottahúsinu.
Sérgeymsla (9,4fm.) í kjallara sem er rúmgóð og með glugga.
Svalirnar eru skjólsælar og snúa til suðvesturs.
Hjóla- og vagnageymsla í kjallara.
Langt er í nærliggjandi hús og stór sameiginleg lóð umlykur húsið..
Viðhald á húsinu:- Frárennslislagnir, dren endurnýjað og hiti settur í stétt 2025
- Þakjárn og þakrennur 2018
- Viðgerðir á múrverki, gluggum og svölum 2015:
- Skipt um alla glugga í húsinu nema inn af svölum þar sem þeir voru almennt betur farnir en aðrir gluggar.
- Austurhlið (áveðurs) - vestur hlíð múrhúðuð alveg upp á nýtt og máluð
- Vesturhlið - múrviðgerðir og málun
- Ný svalahandrið á allar svalir
- Ný handrið við tröppur að inngangi hvers stigagangs
- Nýr frontur (þessi með stóru gluggunum) í inngangi hvers stigagangs
- Útidyratröppur steyptar
- Svalagólf máluð.
Húsið er byggt árið 1967.
Tilheyrir heildarhúsinu Bólstaðarhlíð 46-50.
Við Bólstaðarhlíð 48 eru 8 íbúðir og tvær á hverri hæð í þessu 4. hæða húsi.
Við hús nr. 46 eru 12 íbúðir og í nr. 50 eru 12 íbúðir.
Hlutfallstala í húsi er 3,89% og í lóð 3,73%. Bólstaðarhlíð 48, 105 Reykjavík, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 201-3733 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Eignin Bólstaðarhlíð 48 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 201-3733, birt stærð 96.0 fm.
Nánari upplýsingar veitir Hrafnkell P. H. Pálmason Löggiltur fasteignasali, í síma 690 8236, tölvupóstur hrafnkell@fastlind.is.-----------------------------------------------------------------------Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.3. Lántökugjald lánastofnunar4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.