Vel skipulagt 145,5 fm 5 herbergja raðhús (þrjú svefnherbergi) með bílskúr við Bolatanga 3, 270 Mosfellsbæ. Eignin skiptist í 122,0 fm íbúðarrými og 23,5 fm bílskúr, samtals 145,5 fm skv. HMS.
Nánari lýsing: Anddyri með skápum. Bjart og rúmgott alrými með góðri lofthæð sem skiptist í stofu, borðstofu, sjónvarpshol og eldhús. Eldhús með góðu skápaplássi, ofni, helluborði m/viftu yfir, borðkróki og stæði fyrir uppþvottavél. Þrjú svefnherbergi, þ.m.t. hjónaherbergi með útg. í bakgarð. Baðherbergi með walk-in sturtu, vegghengdu salerni, skápum og handklæðaofni. Þvottahús með tengi fyrir þvottavél og þurrkara, vinnuborði m/vaski, skápa innréttingu og litlu geymslulofti. Innangengt úr þvottahúsi í bílskúr. Bílskúr með skápainnréttingu m/vaski og millilofti með fellistiga.
Húsið stendur á á 402,9 fm lóð sem skiptist í pallalagðan fram- og bakgarð ásamt hellulögðu bílaplani með snjóbræðslukerfi.
Frábær og fjölskylduvæn staðsetning þar sem stutt er í alla helstu þjónustu.
Nánari upplýsingar veitir Arnór Daði Eiríksson löggiltur fasteignasali í s. 777-0939 / arnor@as.is.