Finnbogi Kristjánsson lögg. fasteignasali co FRÓN fasteignamiðlun sýnir eignina s. 897-1212. finnbogi@fron.is
Einbýlishús á einni hæð ásamt 1 ha eignarlóð í Kjós. Fjögur svefnherbergi, rúmgott bað með gegnt út á verönd með heitum potti. Innangengt er í bílskúrinn. Mikið pláss á lóðinni, þar er m.a. hjallur, eldstæði, tjörn, fjölbreyttur trjágróður og gott aðkomuplan. Það má byggja meira á lóðinni. Mjög hentugt þeim sem vilja búa í sveit en vilja vera steinsnar frá borginni. Góð veðursæld og gott útsýni. Um er að ræða 195,2 fm íbúðarhús á einni hæð. Þar af er bílskúr 32,6 fm.
Eins hektara eignarlóð fylgir með. Hægt er að byggja á lóðinni fleiri hús. Bæjarstæðið er afar hentugt sem snýr vel að sól og hefur gott útsýni yfir sveitina.
Komið er inn
í forstofu með skápum og flísum á gólfi. Útihurð er úr gegnheilum massífum við.
Viðarparket er á stofu, gangi og eldhúsi. Plastparket á herbergjum.
Eldhúsið er með eyju. Uppþvottavél og tvöfaldur ísskápur.
Stofan er rúmgóð og snýr í þrjár áttir, með miklu útsýni yfir sveitina, m.a. á Esjuna og út á sjó. Á stofunni er parket, gengið er út á verönd í vestur og bjartir gluggar sem eru „skyggðir“ (sólvarðir) í öllu húsinu.
Svefnherbergin eru fjögur og flest með skápum.
Hjónaherbergið er rúmgott með skápum.
Bað er flísalagt með baðkari og sturtu. Ljós tæki og skápainnrétting.
Gengið er þaðan út á suður verönd. Þar er
heitur pottur og þvottasnúrur. Þvottahús er flísalagt með skápainnréttingu.
Húsið hefur verið vel byggt og vandað til við gerð þess.
Hiti er í öllum gólfum frá hitaveitu sveitarfélagsins. Húsið er byggt á steinsteyptri plötu. Kraftsperrur eru á húsinu sem gera það að verkum að útveggir eru burðaveggir.
Bílskúrinn er með rafdrifinni innkeyrsluhurð og sér tvær manngengar hurðir. Önnur er í austur og hin er í vestur. Geymsluloft, að hluta. Gluggar. Hillur. Vaskur. Vinnuborð. Tengigrind fyrir heitt vatn frá hitaveitu. Rafmagnstafla. Gengið er inn í þvottahús úr bílskúrnum.
Á lóðinni er
harðfiskhjallur sem má verka í.
Eldstæði er í lóðinni.
Tjörn er neðan við húsið.
Skógarlundur,
fjölbreytt tré og grasvöllur.
Mjög skjólgott og veðursæld er mikil. Ekki langt að fara í bæinn.
Pússa þarf upp ryð í þakjárni og mála þakjárn á húsi og bílskúr. Einnig að ljúka frágang á rafmagni í bílskúr.
Eigandinn hefur gert ráð fyrir að
byggja 60 fm skemmu. Möguleiki er að byggja stærra með samþykki sveitarfélagsins.
Staðsetningin er frekar prívat en deilir sömu heimkeyrslu með öðrum, en sér upp að húsinu. Ef kaupandi vill stærra land, til að bæta við, þarf hann að semja við viðkomandi landeiganda.
Þetta hús hentar fyrir þá sem vilja vera í sveit á mjög góðum stað, en eru samt er nærri borginni.
Finnbogi Kristjánsson lögg. fasteigna- skipa og fyrirtækjasali og lögg. leigumiðlari hefur starfað við fasteignasölu í 40 ár og er eigandi af FRÓN fasteignamiðlun. Sérhæfing í sölu fasteigna, hótela, fyrirtækja, skipa, lands og bújarða. Lögn reynsla af veðmötum á fasteignum og fyritækjum. Einnig í fjármálum heimilanna og í rekstri fyrirtækja. Leigumiðlun fasteigna, íbúða og atvinnuhúsnæðis.