BYR fasteignasala kynnir í einkasölu BLÓMVANGUR 2 ÍBÚÐ 101 Egilsstöðum. Fjögurra herbergja íbúð á jarðhæð með sérinngangi í fjölbýlishúsi. Stutt í alla almenna þjónustu. Smellið hér fyrir staðsetningu. Húsið er steypt fjölbýlishús byggt árið 2005, eignin skiptist í íbúð, 90,5 m² og geymslu 8,0 m² s... Sýna meira
BYR fasteignasala kynnir í einkasölu BLÓMVANGUR 2 ÍBÚÐ 101 Egilsstöðum. Fjögurra herbergja íbúð á jarðhæð með sérinngangi í fjölbýlishúsi. Stutt í alla almenna þjónustu. Smellið hér fyrir staðsetningu. Húsið er steypt fjölbýlishús byggt árið 2005, eignin skiptist í íbúð, 90,5 m² og geymslu 8,0 m² samtals 98,5 m² samkvæmt skráningu HMS. Skipulag eignar: Forstofa, alrými með eldhúsi, borðstofu og stofu, gangur, þrjú svefnherbergi og baðherbergi/þvottahús. Í sameign í kjallara er geymsla, þvottahús, hjóla- og vagnageymsla og sorpgeymsla. Nánari lýsing: Forstofa með fatahengi og skóhirslu, flísar á gólfi. Gangur liggur innan við forstofu að öðrum rýmum íbúðar.Alrými með eldhúsi, borðstofu og stofu. Útgengt er úr stofu út á hellulagða verönd. Sérafnotaflötur er í framhaldi af verönd.Eldhús með upprunalegri innréttingu, í eldhúsi er helluborð, ofn, vifta og stálvaskur, uppþvottavél og ísskápur fylgir. Tengi er fyrir þvottavél þar sem uppþvottavél er í eldhúsinnréttingu. Svefnherbergin eru þrjú. Hjónaherbergi með fjórföldum fataskáp. Tvö barnaherbergi, tvöfaldur fataskapur er í öðru þeirra. Baðherbergi, sturta, vegghengt salerni og vaskinnrétting, flísar á gólfi. Opið er á milli baðherbergis og þvottahúss. Þvotthús með flísum á gólfi, vegghengdar hillur og snúra. Gólfefni: Parket á alrými, svefnherbergi og gangi. Flísar á forstofu og baðherbergi/þvottahús.Í kjallara er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla, ásamt sameiginlegri þvottaaðstöðu. Sér geymsla 8,0 m² í kjallara. Málað gólf í sameign í kjallara. Húsið er steypt með tveimur utanáliggjandi stigahúsum. Húsið er þrjár hæðir og kjallari. 23 íbúðir eru í húsinu. Þak er flatt hefðbundið viðsnúið með pappa og fargi. Malbíkuð bílastæði. Hellulögð verönd er aftan við eignina útgengt þangað er úr stofu.ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á SKRIFSTOFU s. 483 5800 - Elín Káradóttir, löggiltur fasteignasali og eigandi – Hrönn Bjargar Harðardóttir, löggiltur fasteignasali / stílisti - Opið alla virka daga milli kl. 09:00-16:00.Um skoðunarskyldu:Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Byr fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun. Gjöld sem kaupandi þarf að greiða af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga / 1.6% fyrir lögaðila2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 m.vsk.5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.www.byrfasteign.is | Austurmörk 7, 810 Hveragerði - Miðvangur 2-4, 700 Egilsstaðir | Byr fasteignasala