RE/MAX ásamt Þórdísi Björk Davíðsdóttur löggiltum fasteignasala kynna:Sérlega bjarta og rúmgóða fjögurra herbergja enda íbúð með sérinngang af svölum. Húsið nýlega málað að utan og plötur á svölum endurnýjaðar 2017 - Þakrennur endurnýjaðar sumarið 2022 - Gler og ytra byrði glugga herbergjanna á norð... Sýna meira
RE/MAX ásamt Þórdísi Björk Davíðsdóttur löggiltum fasteignasala kynna:Sérlega bjarta og rúmgóða fjögurra herbergja enda íbúð með sérinngang af svölum. Húsið nýlega málað að utan og plötur á svölum endurnýjaðar 2017 - Þakrennur endurnýjaðar sumarið 2022 - Gler og ytra byrði glugga herbergjanna á norður- og austur hlið hússins endurnýjað 2020. Samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands er birt flatarmál eignarinnar 115,7 fm og er íbúðarrýmið sjálft 111,3 fm og geymsla á jarðhæð 4,4 fm.*Fyrirhugað fasteignamat fyrir árið 2023 er kr. 67.200.000*SMELLTU HÉR og þú færð SÖLUYFIRLIT SAMSTUNDIS Skoðaðu eignin betur í þrívídd - 3D með því að smella HÉR3D - OPIÐ HÚS ÞEGAR ÞÉR HENTAREKKI þarf sérstakt forrit til að skoða eignina í 3D.Eignin hefur að geyma forstofu, þrjú svefnherbergi, stofu, borðstofu, eldhúsi og baðherbergi með tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Nánari lýsing eignar:Forstofan er rúmgóð með góðu skápaplássi og flísum á gólfi.Úr forstofu er komið inn í bjart, rúmgott opið rými og tengjast þar stofan, borðstofan og eldhúsið.Stofan er björt og rúmgóð með parketi á gólfi. Borðstofan er einnig björt og rúmgóð, stórir gluggar til suðurs og er útgengt á rúmgóðar suður svalir þar sem falleg útsýni er bæði til austurs að Úlfarsfelli og víðar og þá einnig til suðvesturs yfir hluta borgarinnar og út að sjónum.Í eldhúsinu er eikarinnrétting með góðu skápaplássi bæði í veggfastri innréttingunni sem og eyjunni.Svefnherbergin eru þrjú og eru öll rúmgóð, með góðum fataskápum og parketi á gólfi.Baðherbergið er í góðri stærð með sturtuklefa, opnanlegu fagi á glugga og eru flísar í hólf og gólf. Innréttingin er nýlega endurnýjuð ásamt handlaug og blöndunartækjum. Einnig var endurnýjuð innrétting í kringum þvottavél og þurrkara.Allar hurðar eru hvítar yfirfelldar frá Byko. Hurðar voru endurnýjaðar en rammi og gereft voru lökkuð hvít. Gluggar eru ný málaðir að innan - júlí 2022.Sameign er öll hin snyrtilegasta innan sem utan. Sameiginleg hjólageymsla og sérmerkt geymsla íbúðar er 4,4 fm og er á jarðhæð.Garðurinn og lóðin er sameigin allra í Blikahöfða 5-7, þar með talin bílastæði og er aðkoman öll hin snyrtilegasta.Húsfélagið: Sameiginlegt húsfélag er með Blikahöfða 7. Árið 2017 var húsið múrviðgert, málað og skipt um plötur á svölum. 2020 var skipt út gleri og listum á gluggum í svefnherbergjum á norður hlið og einnig á allri austurhlið hússins. 2022 var skipt um allar þakrennur.Stutt er í alla helstu þjónustu. Sundlaug, World-Class, golfvöllur, grunnskóli, leikskólar og fl. er í stuttu göngufæri. Um er að ræða sérlega bjarta, fallega og fjölskylduvæna eign á þessum vinsæla stað í Mosfellsbæ.Allar nánari upplýsingar og bókun á skoðun veitir Þórdís Björk löggiltur fasteigna- og skipasali s: 862-1914 á milli kl. 10 og 18 alla virka daga eða á netfangið Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því RE/MAX skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. - Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.- Ertu í söluhugleyðingum? Smelltu HÉR til að fá frítt verðmat. Smelltu HÉR til að skoða heimasíðu mína og umsagnir viðskiptavina minna.Heimasíða RE/MAXGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: · Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.· Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.· Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 2.500 kr. af hverju skjali.· Lántökugjald lánastofnunar - samkvæmt gjaldskrá lánastofnunar.· Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk