** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðnu - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - eða 690-8040 **Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: 99,8 m2 íbúð á jarðhæð með sérinngangi við Blikahöfða 5 í Mosfellsbæ. Eignin skiptist í... Sýna meira
** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðnu - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - eða 690-8040 **Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: 99,8 m2 íbúð á jarðhæð með sérinngangi við Blikahöfða 5 í Mosfellsbæ. Eignin skiptist í tvö svefnherbergi, forstofu, baðherbergi, þvottahús, eldhús, stofu, borðstofu og sérgeymslu í kjallara. Eignin er skráð 99,8 m2, þar af íbúð 95,4 m2 og geymsla 4,4 m2. Stór timburverönd með heitum potti í suðvesturátt. Skemmtileg eign í góðu hverfi á vinsælum stað í Mosfellsbæ, mjög stutt er í grunnskóla, leikskóla, sundlaug og líkamsrækt, en auk þess er golfvöllur og fallegar gönguleiðir í næsta nágrenni.Skv. upplýsingum frá húsfélaginu var árið 2017 var húsið múrviðgert, málað og skipt um plötur á svölum. 2020 var skipt út gleri og listum á gluggum í svefnherbergjum á norður hlið og einnig á allri austurhlið hússins. 2022 var skipt um allar þakrennur.Nánari lýsing:Forstofa er með flísum á gólfi, fataskáp og fatahengi.Stofa og borðstofa eru í opnu rými með parketi á gólfi. Úr stofu er gengið út á stóra timburverönd í suðvesturátt með heitum potti.Eldhús er innréttingu og flísum á gólfi. Í innréttingu er ofn, helluborð og vifta. Gert er ráð fyrir ísskáp og uppþvottavél.Hjónaherbergi er með parketi á gólfi og fataskápum.Svefnherbergi nr. 2 er með parketi á gólfi og fataskáp.Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, með innréttingu, vegghengdu salerni, handklæðaofn og baðkar með sturtu aðstöðu.Þvottahús er með flísum á gólfi.Sérgeymsla í kjallara. Er skráð 4,4 m2.Íbúðinni fylgir hlutdeild að sameignlegri hjóla- og vagnageymslu.Verð kr. 69.900.000 kr-Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.