4 herbergja íbúð á jarðhæð í þríbýlishúsi, nýlegar endurbætur á þaki og gluggum.
Eiginleikar
Íbúð
Íbúð á jarðhæð í þríbýlishúsi með sérinngangi og langum gangi með tvöföldum fataskáp. Þrjú svefnherbergi og rúmgott baðherbergi.
Stofa
Ágæt stofa, ekki mjög stór.
Eldhús
Rúmt og bjart eldhús með þremur gluggum. Dökkar steinflísar á gólfi, vegleg innrétting úr kirsuberjaviði, gaseldavél, bökunarofn og pláss fyrir uppþvottavél.
Svefnherbergi
Þrjú svefnherbergi við enda gangsins.
Baðherbergi
Mjög rúmgott baðherbergi með hornbaðkari og handklæðaofni.
Þvottahús
Þvottahús í sameign allra í húsinu með inntaki fyrir hitaveitu.
Geymsla
Rúmgóð geymsla við innganginn.
Tæki
Gaseldavél, bökunarofn og pláss fyrir uppþvottavél.
Efni
Gólfefni íbúðarinnar eru flísar og parket nema í þvottahúsi þar sem gólf er máluð.