LF-fasteignasala/Lindin fasteignir s. 893-1319 og Þórdís Pála Reynisdóttir löggiltur fasteignasali thordis@lindinfasteignir.is kynna: Bleiksárhlíð 47, Eskifirði. Um er að ræða einbýlishús á fallegum útsýnisstað. Framan við húsið vestan við útitröppurnar er skjólgóður sólpallur. Þar fyrir ofan eru svalir. Á efri hæð er rúmgóð stofa með miklu útsýni og opið er úr henni inn í rúmgott eldhús og í sjónvarpshol sem væri hægt að loka af og gera að herbergi. Við herbergjagang eru 3 svefnherbergi og ágætt baðherbergi. Á neðri hæð er bílskúr, gott svefnherbergi, þvottahús og baðherbergi með sturtu. Innangengt er í bílskúr. Lóðin er falleg og gróðursæl.