Guðlaugur J. Guðlaugsson og Gunnar Sverrir löggiltir fasteignasalar hjá RE/MAX fasteignasölu kynna í einkasölu:Vel skipulagt og huggulegt 160,7 fm. steinsteypt einbýlishús með viðarklæðningu. Húsið er á tveimur hæðum með þaksvölum og á eignarlóð, lóð/verönd með skjólveggjum.Einstök eign á mjög eftir... Sýna meira
Guðlaugur J. Guðlaugsson og Gunnar Sverrir löggiltir fasteignasalar hjá RE/MAX fasteignasölu kynna í einkasölu:Vel skipulagt og huggulegt 160,7 fm. steinsteypt einbýlishús með viðarklæðningu. Húsið er á tveimur hæðum með þaksvölum og á eignarlóð, lóð/verönd með skjólveggjum.Einstök eign á mjög eftirsóttum stað í miðbænum við Bjarnarstíg 3, 101 Reykjavík. Skipulag: fjögur svefnherbergi, eitt þeirra með sér fataherbergi, útgengi út á þaksvalir frá tveimur þeirra. Stofa, sjónvarpstofa og eldhús ásamt baðherbergi og sér geymslu inn af einu af herbergjunum. Bókið skoðun hjá Gulla í síma 661 6056 eða með tölvupósti á netfangið Smelltu á link til að sjá húsið í 3-DNánari lýsing: Lóðin er aflokuð, dyrabjalla á hurð til að komast inn á lóð.Lóðin er hellulögð að hluta til og með timburverönd að hluta til, mjög skjólgott og huggulegt útisvæði.Komið er inn í forstofu gang með flísum á gólfi og gólfhita, innbyggðum fataskápum og fatahengi. Gólfsíðir gluggar meðfram öllum ganginum gefur góða birtu inn frá lóð hússins. Við hlið fataskápa er gengið inn á baðherbergi inn um tvöfalda franska hurð með gleri í. Baðinnrétting er með handlaug og skápapláss. Baðherbergi er allt flísalagt, gólfhiti í gólfi, sturtu með innbyggðum blöndunartækjum og sér baðkar. Upphengt salerni, handklæðaofn og aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara. Komið er svo inn í alrými sem telur eldhús, stofu og borðstofu með aðgengi inn um tvöfalda franska hurð með gleri í, inn í sjónvarpsherbergi. Gólffjalir á gólfi og upprunalegir ofnar setja svip sinn á rýmið. Rúmgott og bjart alrými með útgengi út á lóð hússins.Eldhúsinnrétting er hvít með gott skúffu- og skápapláss, stein á borði, helluborð og undirlímdan vask, Kolasíuvifta er fyrir ofan helluborð. Bökunarofn er í vinnuhæð, þar við hlið er innbyggður ísskápur. Inn af eldhúsi er stigi upp á efri hæð með kókos teppi á þrepum og þakglugga sem gefur gefur góða birtu. Á stigapalli á efri hæð er gengið inn á vinstri hönd í rúmgott herbergi með gólffjalir á gólfi og hefðbunda ofna. Gluggi á herbergi vísar út á þaksvalir, herbergi er að hluta til undir súð. Inn af herberginu er sér geymsla. Frá stigapalli, þegar gengið er á hægri hönd, þá er komið inn í rúmgott og bjart hjónaherbergi með gólffjölum á gólfi og upprunalegum ofnum. Þakgluggi gefur birtu inn, inn af herbergi er svo rúmgott fataherbergi með sömu gólffjölum þar og glugga sem vísar út á lóð. Frá hjónaherbergi er svo útgengi út á timburlagðar, skjólgóðar og flottar þaksvalir. Á ganginum við inngang inn í húsið er svo eitt mjög rúmgott svefnherbergi, gólffjalir á gólfi með gólfhita, gluggar á tvo vegu og hátt til lofts að hluta til í herberginu. Stigi er svo upp á efri hæð, parketlagður stigi með stórum glugga sem gefur birtu inn, þar á efri hæðinn er stigapallur með aðgengi að rúmgóðu svefnherbergi, undir súð með gólffjölum. Frá stigapalli er einnig annað aðgengi út á þaksvalir hússins.Húsið er steinsteypt, það var klætt með viðarklæðningu fyrir c.a. 25 árum, þá var einnig byggt við húsið sjónvarpsstofa og geymsla. Húsið var svo stækkað árið 2006, bætt var við fataherbergi við hjónaherbergi og ný viðbygging byggð við, þ.e. gangur með gólfsíðum gluggum sem vísa út á lóð ásamt baðherbergi og tveimur rúmgóðum svefnherbergjum. Árið 2009 var sett timburverönd á lóð hússins og sama pallaefni sett á þaksvalir hússins. Samhliða voru lagðar nýjar lagnir og rafmagn þar endurnýjað. Ný eldhúsinnrétting var sett upp árið 2019, þakið var yfirfarið það sama ár.Nánari upplýsingar veita: Guðlaugur J. Guðlaugsson/Gulli löggiltur fasteignasali í síma 661-6056 / og Gunnar Sverrir löggiltur fasteignasali í síma 862-2001 / Vegna mikillar eftirspurnar vantar okkur allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og við munum verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0.5% - 1,0% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.4. Umsýslugjald til fasteignasölur kr. 69.900.-