Hraunhamar kynnir sérlega fallega ca. 85 fm 3ja til 4ra herbergja íbúð á neðri hæð í góðu vel staðsettu tvíbýli í Setbergshverfnu í Hafnarfirði. Sér afnotaréttur (garður/pallur)
Íbúðin er skráð 80 fm skv. Þjóðskrá Íslands en bætt var við forstofu og þvottahúsi sem ekki er inni í fermetratölu eignarinnar. (Óskráð rými, ca 5 fm) Samtals stærð því ca 85 fm. Eignin nýtist sem 4ra herbergja íbúð í dag. Geymsla og þvottahús á teikningu nýtast sem tvö herbergi. Skipting eignarinnar: Forstofa, hol, þvottahús/geymsla. Þrjú svefnherbergi, stofa, eldhús og verönd.
Lýsing eignar: Góð aðkoma,
sér bílastæði fyrir framan íbúðina. Sér inngangur, forstofa,
geymsla/þvottahús þar inn af.
Hol, rúmgott vel innréttað
eldhús og rúmgóð opin stofa.
Útgangur frá stofu út á mjög góða
og stóra verönd í garði. Á gangi eru tvö ágæt barnaherbergi og rúmgott svefnherbergi með góðum skáp.Falleg
baðherbergi sem er flísalagt í hólf og gólf með sturtu og innréttingu.
Parket og flísar á gólfum. Vínkælir og innb. uppþvottavél/ísskápur fylgja með. Íbúðin er ekki skv. teikningum.Þetta er falleg og vel staðsett eign í göngufæri við skóla, leikskóla og verslun. Góð ræktuð lóð.Samkvæmt uppl. seljenda : Þá fylgir lóðin/grasflötur á neðri hæð og allur pallurinn neðri íbúðinni, einnig bílastæði fyrir framan.
Eign sem vert er að skoða nánar. Nánari uppl. gefur Helgi Jón Harðarson sölustj. s. 893-2233 eða helgi@hraunhamar.is og
Einar Örn Ágústsson, löggiltur fasteignasali s. 888-7979 eða einar@hraunhamar.isSkoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala vill benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga fyrir nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi
Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983.
Hraunhamar, í fararbroddi í rúm 40 ár. – Hraunhamar.is
Smelltu hér til að fá frítt söluverðmat.