** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - eða 862-9416 **Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Mjög falleg og vel s... Sýna meira
** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - eða 862-9416 **Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Mjög falleg og vel skipulögð 117,2 m2, 3ja herbergja endaíbúð með fallegu útsýni á efstu hæð ásamt bílastæði í bílageymslu í lyftuhúsi við Bjarkarholt 29 í miðbæ Mosfellsbæjar. Eignin er skráð 117,2 m2, þar af íbúð 110,0 m2 og geymsla 7,2 m2. Eignin skiptist í tvö svefnherbergi, forstofu, baðherbergi, eldhús, stofu og borðstofu. Sérgeymsla í kjallara. Um er að ræða rúmgóða íbúð með fallegum innréttingum og gólfefnum. Tvennar svalir með svalalokunum. Frábær staðsetning í miðbæ Mosfellsbæjar þar sem stutt er í alla helstu þjónustu.Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.Nánari lýsing:Forstofa er með fataskáp, fatahengi og vínylparketi á gólfi. Gangur/hol er með vínylparketi á gólfi.Eldhús er með fallegri L-laga innréttingu og vínylparketi. Í innréttingu er innbyggður ísskápur, innbyggð uppþvottavél, bakaraofn, spanhelluborð og vifta. Gluggar á tvo vegu eru í eldhúsi með fallegu útsýni.Stofa/borðstofa er í opnu björtu rými með vínylparketi á gólfi. Úr rýminu er gengið út á tvennar svalir með svalalokunum, aðrar í suðurátt og hinar í vesturátt.Svefnherbergi nr. 1 (hjónaherbergi) er með fataskápum og vínylparketi á gólfi.Svefnherbergi nr. 2 er með fataskáp og vínylparketi á gólfi.Baðherbergi er flísalagt með fallegri innréttingu, innréttingu fyrir þvottavél og þurkara, skápum, vegghengdu salerni, handklæðaofni og sturtu. Gluggi er á baðherbergi.Sérgeymsla er í kjallara, skráð 7,2 m2.Eigninni fylgir bílastæði í lokaðri bílageymslu og er búið að setja upp hleðslustöðvakerfi. Íbúðinni fylgir einnig hlutdeild að sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu.Verð kr. 96.900.000,- Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.