Fasteignasalan Garður Um er að ræða 4ja herbergja endaíbúð á annari hæð, sérinngangur af svölum merkt 201. Íbúðin skiptist í þrjú svefnherbergi, stofu, baðherbergi, eldhús og þvotthús/geymslu innan íbúðar. Íbúðin er vel staðsett í nýlegu hverfi Ytri Njarðvíkur í Reykjanesbæ, góð aðkoma. Húsið er byg... Sýna meira
Fasteignasalan Garður Um er að ræða 4ja herbergja endaíbúð á annari hæð, sérinngangur af svölum merkt 201. Íbúðin skiptist í þrjú svefnherbergi, stofu, baðherbergi, eldhús og þvotthús/geymslu innan íbúðar. Íbúðin er vel staðsett í nýlegu hverfi Ytri Njarðvíkur í Reykjanesbæ, góð aðkoma. Húsið er byggt 2008 fallegt og fjölskylduvænt.Samkvæmt Þjóðskrá Íslands er íbúðin merkt 0201, skráð samtals: 120,6 fm, á annari hæð.Endaíbúð er á annari hæð í fallegu fjölbýlishúsi, byggðu 2008. Húsið er steinað með ljósgrárri steiningu, þakkantur er blár og með járnhandriði. Gengið er inn af svalapalli og er sérinngangur. Sameigninleg frágengin lóð, plön malbikuð og lóð með leiktækjum fyrir unga fólkið og sérmerkt tvö bílastæði.Nánari lýsing:Komið er inn á flísalagt anddyri með fataskáp og þar á hægri hönd er flísalagt og rúmgott þvottahús sem einnig er geymsla íbúðarinnar. Millihurðin er með fallegum litlum gluggum og komið er inn í rúmgóða stofu. Eldhús, borstofa og stofa eru í björtu og rúmgóðu alrými. Úr stofu er útgengi út á svalir. Í eldhúsi eru tveir gluggar, gólfið flísalagt og innrétting sem hvítlökkuð með háglans áferð. Innbyggður ísskápur, harðplast í borðplötum, pláss fyrir uppþvottavél og flísalagt á milli innréttinga með dökkum flísum. Stofan er rúmgóð með útgengi út á svalir og þar er útsýni út í sameiginlegan garð sem er með leiktækjum fyrir unga fólkið. Á svefnherbergisgangi eru þrjú herbergi og baðherbergi. Barnaherbergin eru tvö, bæði með fataskápum. Hjónaherbergið er rúmgott með fataherbergi inn af. Baðherbergið er flísalagt með hvítum flísum , bæði gólf og veggir. Innréttingin er hvít með borðplötu og vask í einni einingu og baðkar með sturtuaðstöðuGólfhiti er í íbúðinni, parket er á stofu, borðstofu, gangi og herbergjum. Flísar eru á anddyri, þvottahúsi/geymslu, eldhúsi og baðherbergi.Á jarðhæð tengirými og hjólageymsla.***Afar snyrtileg, björt og falleg eign sem hentar vel fyrir fjölskyldur á vinsælum stað í Reykjanesbæ. Sameigninleg frágengin lóð, bílaplön malbikuð og lóð með leiktækjum. Íbúðin er í nálægð við nýjan Stapaskóla og leikskóla. Eign sem sannarlega er vert að skoða.*** Um skoðunarskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.www.fastgardur.is | Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður