Byr fasteignasala kynnir í einkasölu BERJARIMI 9, fjögurra herbegja íbúð á fyrstu hæð með sérinngangi í fjölbýlishúsi í Grafarvogi.Húsið er steypt þrjár hæðir auk kjallara, eignin skiptist í íbúð 92 m² og geymslu í sameign 6,1 m² samtals 98,1 m² samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands. Skipulag eignar,... Sýna meira
Byr fasteignasala kynnir í einkasölu BERJARIMI 9, fjögurra herbegja íbúð á fyrstu hæð með sérinngangi í fjölbýlishúsi í Grafarvogi.Húsið er steypt þrjár hæðir auk kjallara, eignin skiptist í íbúð 92 m² og geymslu í sameign 6,1 m² samtals 98,1 m² samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands. Skipulag eignar, anddyri, alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, þrjú svefnherbergi, baðherbergi. Sér geymsla í sameign í bílakjallara, vagna- og hjólageymsla.Sérinngangur er í íbúðina. Anddyri með flísum á gólfi, snagar á vegg og hilla. Frá anddyri er gengið inn rými með stofu, borðstofu, þar er góður skápur sem nýtist meðal annars sem forstofuskápur.Stofa og borðstofa eru samliggjandi í mjög góðu opnu rými. Síðir gluggar eru í borðstofuhluta, borðstofuskápar fylgja ásamt sjónvarpsskáp.Útgengt er út svalir/pall til vesturs, pallurinn er u.þ.b. 21 m². Opið er yfir í eldhúsið frá rýminu. Eldhús með rúmgóðri innréttingu, keramik helluborði, háf og ofni í vinnuhæð, ísskápur og uppþvottavél fylgja. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Sturta, salerni og vaskinnrétting. Þvottaaðstaða er á baðherbergi. Gólfefni, flæðandi gegnheilt parket með fiskibeinamynstri er á stofu, borðstofu, eldhúsi og svefnherbergjum. Flísar á anddyri og baðherbergi. Geymsla með máluðu gólfi í sameign í bílakjallara. Þessi íbúð á ekki bílastæði í bílakjallara, tvö bílaþvottastæði eru í bílakjallara til afnota fyrir íbúa hússins.Gangstétt að húsinu er upphituð.Húsið er steypt hús á þremur hæðum með bílakjallara byggt árið 1992. Sérinngangur er í íbúðina, hægt er að koma að íbúðinni í gegnum sameiginlegt anddyri hússins eða með því að ganga með fram húsinu hægra megin að þar að íbúðinni sem er önnur íbúð frá horni. Húsið að utan ásamt sameign var tekið í gegn árið 2015. Við húsið er gott leiksvæði með bæði leiktækjum og grasflöt. Rimaskóli er í göngufæri 5-7 mín og leikskólinn Fífuborg er í 2 mín göngufjarlægð. Upphituð gönguleið liggur frá Berjarima 9 að Spönginni.Góð og fjölskylduvæn staðsetning í rótgrónu hverfi þar sem stutt í alla almenna þjónustu s.s. skóla og leikskóla og afþreyingu í Spönginni og Egilshöll. Ýtið hér fyrir staðsetningu. ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á SKRIFSTOFU s. 483 5800 - Elín Káradóttir, löggiltur fasteignasali og eigandi – Hrönn Bjargar Harðardóttir, löggiltur fasteignasali, - stílisti - Irpa Fönn Hlynsdóttir, hefur lokið námi til löggildingar, - skrifstofa. Um skoðunarskyldu:Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Byr fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun. Gjöld sem kaupandi þarf að greiða af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga / 1.6% fyrir lögaðila2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.www.byrfasteign.is | Austurmörk 4, 810 Hveragerði | Byr fasteignasala