RAÐHÚS MEÐ BÍLSKÚR VIÐ BAUGÖLDU 11B Á HELLU. Um er að ræða íbúð í nýju fjögurra íbúða raðhúsi. Húsið er byggt úr timbri og er klætt að utan með lituðu járni. Litað járn er á þaki. Eignin telur: Anddyri og hol með vinylparketi á gólfi. Sambyggða stofu og eldhús með vinylparketi á gólfi. Hurð er úr stofunni út í garð. Í eldhúsinu er vönduð innrétting með; ísskáp með frysti, uppþvottavél, spanhelluborði, ofni og örbyglgjuofni. Þrjú svefnherbergi með vinylparketi á gólfi, skápur er í hjónaherberginu. Baðherbergi með vinylparketi á gólfi, innréttingu og stórum sturtuklefa með flísum á gólfi. Þvottahús með vinylparketi á gólfi og innréttingu. Úr þvottahúsinu er innangegnt í bílskúrinn sem er fullfrágenginn. Á honum eru innkeyrsludyr og tvær gönguhuðir. Gólfhiti er í öllum gólfum. Framan við húsið er malarborið bifreiðastæði, en baklóðin er grófjöfnuð.