Hólmar Björn Sigþórsson löggiltur fasteignasali og Helgafell fasteignasala kynna í einkasölum Básahraun 22, 815 Þorlákshöfn:Um er að ræða einstaklega glæsilegt og vel viðhaldið 6 herbergja einbýlishús á einni hæð með tvöföldum bílskúr. Birt stærð eignar samkvæmt fasteignaskrá er 231,5 fermetrar, þ.a. er íbúðarhluti 185 fm. og bílskúr 46,3 fm. Umhverfis húsið er gróinn og fallegur garður með ca. 70 fm suðvestur sólpall og heitum potti. Húsið er vel staðsett innarlega í botnlanga.
SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT STRAXEignin skiptist í anddyri, stofu og borðstofu, sjónvarpsstofa / arinstofa, eldhús, hol / gang, 4 svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og tvöfaldan bílskúr / geymsla.
Lýsing eignar:Anddyri: Komið er inn í flísalagða forstofu með góðum fataskápum.
Stofa / sjónvarpsstofa: Rúmgóð og björt, parket á gólfi.
Borðstofa: Með parket á gólfi.
Arinstofa: Arinstofa með glæsilegum arni og náttúruflísum á gólfi og útgengi út á suðvestur sólpall.
Eldhús: Með góðri innréttingu, ísskápur og uppþvottavél sem fylgja með, 2 bakaraofnar og er annar þeirra combi ofn, spanhelluborð og vifta, náttúruflísar á gólfi.
Hol / gangur: Parket á gólfi.
Hjónaherbergi: Stórt hjónaherbergi með stórum fataskápum og vinylparket á gólfi.
Svefnherbergi 2: Rúmgott með fataskápum, parket á gólfi.
Svefnherbergi 3: Rúmgott með fataskápum, parket á gólfi.
Svefnherbergi 4: Rúmgott með fataskápum, parket á gólfi.
Baðherbergi: Góð innrétting, baðker og stór sturtuklefi, handklæðaofn, flísalagt í hólf og gólf.
Þvottahús: Nýleg innrétting fyrir þvottavélar í vinnuhæð og skóskápur, vinnuborð og vaskur, gönguhurð út í anddyri, flísar á gólfi.
Bílskúr / geymsla: Tvöfaldur 46,5 fm. bílskúr, gönguhurð út í anddyri, nýjar bílskúrshurðir, rúmgott geymsluloft, rafhleðslustöð sem fylgir með, vinnuborð, kalt vatn og hiti, inn af bílskúr er góð geymsla með hillum, flísar á gólfi.
Húsið: Húsið er steypt og byggt 1983. Húsið hefur alla tíð fengið gott viðhald. Allar gardínur geta fylgt með. Flest ljós geta fylgt með. Vínyl parket í herbergjum var endurnýjað fyrir ca. 7 árum og annað parket var endurnýjað 2008.
Lóð: Einstaklega glæsileg 675 fm. lóð. Framan við húsið er hellulögð stétt að húsi og pallur við anddyri er flísalagður. Framan við bílskúr er hellulögð innkeyrsla með hitalögn. Á norður og vestur hlið er hellulögð stétt, á suðvesturhlið er skjólgóður ca. 70 fm sólpallur með heitum potti, á suður og austurhlið er svo gras og fallegur gróður.
Staðsetning: Smellið hér. Hér er um að ræða virkilega fallegt og vel viðhaldið fjölskylduhús á góðum stað - Stutt er í grunn- og leikskóla, sundlaug og íþróttahús, verslanir, alla helstu þjónustu og náttúruna - Eign sem vert er að skoða.
Nánari upplýsingar og bókun á skoðun gefur Hólmar Björn Sigþórsson, löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala í s. 893 3276 eða í netfangið holmar@helgafellfasteignasala.is.
Þorlákshöfn:Þorlákshöfn er frábær staður til að búa sér notalegt heimili og ala upp börn. Vinalegur og barnvænn bær í nálægð við aðra þéttbýliskjarna. Í dag er öll þjónusta við barnafólk og fjölskyldur í Þorlákshöfn til fyrirmyndar. Stuttar vegalengdir einfalda allar samgöngur og börnin geta gengið örugg í skóla og tómstundastarf. Skólarnir eru eitt af trompum bæjarins þar sem stutt er vel við bakið á þeim sem þess þurfa. Rúmgóður og vel búinn grunnskóli með persónulegum samskiptum á milli heimilis og skóla. Leikskólinn Bergheimar er fimm deilda leikskóli fyrir tveggja til sex ára börn og í Vesturbyggð nýju hverfi er verið að byggja leikskólann Hraunheima. Öll íþróttaaðstaða í Þorlákshöfn er mjög góð og ákaflega vel nýtt af bæjarbúum. Margir nýir íbúar hafa nefnt að í stað þess að festa kaup á íbúð á höfuðborgarsvæðinu hafi verið hægt að fá íbúðarhús í Þorlákshöfn og búa fjölskyldunni stærra og rúmbetra heimili í barnvænu umhverfi.
Ertu í fasteignahugleiðingum - Þarftu að selja eignina þína? Ég veiti afburða þjónustu og eftirfylgni, sanngjörn söluþóknun, sláið á þráðinn í síma 893 3276.
----------------------------------------------------------
Heimasíða Helgafells fasteignasölu
Facebook síða Helgafells
- Hafðu samband og við gerum söluverðmat á eign þinni, þér að kostnaðarlausu -
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt í kringum 50þ., oft lægra eða ekkert lántökugjald fyrir fyrstu kaup. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Þjónustusamningur milli kaupanda og fasteignasölu - Kr. 92.380,- m/vsk.
Helgafell fasteignasala bendir kaupendum á ríka skoðunarskyldu sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Skorað er á kaupendur að kynna sér vandlega ástand fasteigna og nýta til þess aðstoð sérfræðinga. Sömuleiðis er bent á upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. Laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Seljanda er bent á að kynna sér tilvitnaðar lagagreinar.