Laus við samning.Eignin Bárugrandi 3, 107 Reykjavík. Stórborg kynnir í einkasölu nánar tiltekið eign merkt 03-02, fastanúmer 202-4898 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Eignin Bárugrandi 3 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 202-4898, birt stærð 81.6 fm ( 86.6 fm). 3jaherbergja íbúð á 3.hæð. ( eignin var upphaflega teiknuð stór 2ja). Geymsla í kjallara.
Íbúð er skráð 81.6 fm (81.1 skv. eignaskiptasamningi) + sérgeymsla í kjallara 5.0 fm. Sameiginlegt þvottahús og hjólageymsla er í kjallara.
Falleg og björt 3ja herbergja íbúð á 3.hæð. Stórar suðursvalir sem eru með útsýni, skjólgóðar. Íbúðin skiptist í forstofu, hol, tvö herbergi, eldhús, baðherbergi og stofu. Ástand og útlit íbúðar er mjög gott.
Flísar og parket á gólfum. Nýlegt teppi á hjónaherbergi. Stofan er frekar lítil en cosy.
Eldhús endurnýjað 2023: innréttingar frá Ikea með frontum frá HAF-studio. Ný tæki frá AEG. Innbyggð uppþvottavél. Góður borðkrókur við svalirnar.
Baðherbergi endurnýjað frá grunni 2024: Flísar frá Álfaborg, innbyggð blöndunartæki í sturtu, frontar frá HAF-studio á innréttingu. Sturtuklefi, innrétting og lögn fyrir þvottavél.
Forstofa: Flísalögð og skápur settur upp með frontum frá HAF-studio.
Sérsaumaðar gardínur frá Álnabæ í öllum gluggum.
Teppi frá Parka lagt á gólf í svefnherbergi.
Allsherjarframkvæmdir utanhúss 2024-2025. (seljandi greiddi um 2 milljónir í sinn hlut).
Múrviðgerðir og málað, nýjir gluggar og gler þar sem við átti, svalagólf yfirfarið og mála, þak yfirfarið. Nýr gluggi settur í barnaherbergi með opnanlegu fagi sem ekki var fyrir.
Frábær staðsetning í rólegum botnlanga. Stutt í alla þjónustu. Laus við kaupsamning.
Nánari upplýsingar veitir Stefán Hrafn , í síma 8952049 , tölvupóstur stefan@storborg.is.
vakin er athygli á því að fasteignasali tengist seljanda fjölskylduböndum.