Kjöreign fasteignasala, Ármúla 21, Reykjavík, sími 533-4040 kynnirKjöreign fasteignasala kynnir: bjarta og vel skipulagða 3ja herbergja íbúð á efri hæð í virðulegu, steinsteyptu tvíbýlishúsi á eftirsóttum og grónum stað í Vesturbæ Reykjavíkur. Eigninni fylgir óvenju stór bílskúr ásamt sér bílastæði ... Sýna meira
Kjöreign fasteignasala, Ármúla 21, Reykjavík, sími 533-4040 kynnirKjöreign fasteignasala kynnir: bjarta og vel skipulagða 3ja herbergja íbúð á efri hæð í virðulegu, steinsteyptu tvíbýlishúsi á eftirsóttum og grónum stað í Vesturbæ Reykjavíkur. Eigninni fylgir óvenju stór bílskúr ásamt sér bílastæði á lóðinni. Bílskúrinn er með góðri gluggasetningu , ágætri lofthæð og býður upp á mikla möguleika, til dæmis sem vinnustofa eða stúdíóíbúð. Sameiginlegur inngangur er inn í íbúðina með neðri hæð. Útfrá stigapalli á efri hæð eru stórar sameiginlegar vestursvalir. Skjólsæll og sólríkur suðurgarður.Samkvæmt fasteignamati er eignin 156,9 fermetrar, þar af er bílskúr 60,1 fermetrar og sjálf íbúðin 85,3 fermetrar auk tveggja geymslna sem eru 5,8 og 5,7 fermetrar. Rúmgóð sameign í kjallara þar sem er meðal annars þvottaherbergi, kyndiklefi og gangur, þaðan sem útgengt er á lóð.Eignarhlutanum fylgir hlutdeild í mögulegum byggingarrétti á hæð ofan á húsið, en í upphafi var ráðgert að hafa rishæð í húsinu. Ófrágengið lokað rými í sameign í kjallara er ca. 20 fm.Fasteignamat eignarinnar fyrir árið 2023 verður 90.550.000.-Lýsing eignar:Inngangur : snyrtilegur, sameiginlegur með íbúð á 1. hæð, dúkur á gólfi og dúklagður stigi upp á hæðina. Innangengt er úr stigagangi í kjallara.Stigapallur: dúklagður, útgengt á rúmgóðar vestursvalir.Inngangur : dúklagður.Eldhús: dúklagt gólf með upprunalegri hvítmálaðri innréttingu með viðarborðplötu.Búr: er inn af eldhúsi, dúklagt gólf með innréttingu og glugga.Borðstofa: björt, dúklögð.Stofa: björt, dúklögð. Rennihurð á milli stofu og borðstofu. Baðherbergi: með glugga, dúklagt, baðkar með sturtu.Herbergi: dúklagt, rúmgott með gluggum í tvær áttir og fataskáp.Í kjallara hússins eru:Sérgeymsla, 5,8 fermetrar að stærð, máluð gólf og með glugga.Sérgeymsla, 5,7 fermetrar að stærð, máluð gólf og með glugga.Sameiginlegur kyndiklefi, máluð gólf og með glugga.Sameiginlegt þvottaherbergi, máluð gólf og með glugga.Gangur og forstofa, máluð gólf, með útgengi á lóð.Ýmislegt. Íbúðin er komin að endurnýjun að innanverðu og skoða þarf glugga og gler í íbúðinni. Seljandi er dánarbú. Afhending er við kaupsamning.Húsið, steinhús byggt 1934, lítur vel út og virðist vera í nokkuð góðu ástandi. Búið er að endurnýja rafmagnstöflur bæði fyrir húsið og bílskúrinn. Lóðin, er skjólsæl suðurlóð, afgirt með steyptum veggjum.Bílskúr, 60,1 fermetrar, er raflýstur og með rennandi vatni. Gönguhurð er úr bílskúrnum út á suðurlóð. Nýlega hefur þak á bílskúr verið endurnýjað með pappa og listum á köntum.Staðsetning eignarinnar er virkilega góð, á grónum og eftirsóttum stað í Vesturbæ Reykjavíkur, þaðan sem stutt er í leikskóla, grunnskóla, Háskóla Íslands, Vesturbæjarlaug, verslanir, þjónustu, menningu og listasöfn. Upplýsingar gefa sölumenn Kjöreignar ehf. í síma 533-4040 eða . Vinsamlegast pantið skoðunartíma.Ásta María Benónýsdóttir lögg. fasteignasali gsm. 897-8061 Davíð Karl Wiium lögfræðingur og lögg. fasteignasali gsm. 847-3147 Dan Wiium hdl., og lögg. fasteignasali gsm. 896-4013 Upplýsingar gefa sölumenn Kjöreignar í síma 533-4040 eða Dan Wiium lögm. og lögg. fasteignasali gsm. 896-4013 eða Ásta María Benónýsdóttir lögg. fasteignasali gsm. 897-8061 eða Davíð Karl Wiium lögfræðingur og lögg. fasteignasali gsm. 847-3147 eða Má bjóða þér frítt verðmat á þína fasteign án skuldbindingar?Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.500 af hverju skjali.3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.Skoðunarskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram komaí söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegirog sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.