Eignin er seld og er í fjármögnunarferli.Fasteignamarkaðurinn kynnir til sölu bjarta og vel skipulagða 3ja herbergja íbúð á efri hæð í virðulegu, steinsteyptu tvíbýlishúsi á eftirsóttum og grónum stað í Vesturbæ Reykjavíkur. Eigninni fylgir óvenju stór bílskúr ásamt sér bílastæði á lóðinni. Bílskúri... Sýna meira
Eignin er seld og er í fjármögnunarferli.Fasteignamarkaðurinn kynnir til sölu bjarta og vel skipulagða 3ja herbergja íbúð á efri hæð í virðulegu, steinsteyptu tvíbýlishúsi á eftirsóttum og grónum stað í Vesturbæ Reykjavíkur. Eigninni fylgir óvenju stór bílskúr ásamt sér bílastæði á lóðinni. Bílskúrinn er með góðri gluggasetningu, ágætri lofthæð og býður upp á mikla möguleika, til dæmis sem vinnustofa eða stúdíóíbúð. Sameiginlegur inngangur er inn í íbúðina með neðri hæð. Út frá stigapalli á efri hæð eru stórar sameiginlegar vestursvalir. Skjólsæll og sólríkur suðurgarður.Samkvæmt fasteignamati er eignin 156,9 fermetrar, þar af er bílskúr 60,1 fermetrar og sjálf íbúðin 85,3 fermetrar auk tveggja geymslna sem eru 5,8 og 5,7 fermetrar. Rúmgóð sameign í kjallara þar sem er meðal annars þvottaherbergi, kyndiklefi og gangur, þaðan sem útgengt er á lóð.Eignarhlutanum fylgir hlutdeild í mögulegum byggingarrétti á hæð ofan á húsið, en í upphafi var ráðgert að hafa rishæð í húsinu. Ófrágengið lokað rými í sameign í kjallara er ca. 20 fm.Fasteignamat eignarinnar fyrir árið 2023 verður 90.550.000.-Lýsing eignar:Inngangur: snyrtilegur, sameiginlegur með íbúð á 1. hæð, dúkur á gólfi og dúklagður stigi upp á hæðina. Innangengt er úr stigagangi í kjallara.Stigapallur: dúklagður, útgengt á rúmgóðar vestursvalir.Inngangur: dúklagður.Eldhús: dúklagt gólf með upprunalegri hvítmálaðri innréttingu með viðarborðplötu.Búr: er inn af eldhúsi, dúklagt gólf með innréttingu og glugga.Borðstofa: björt, dúklögð.Stofa: björt, dúklögð. Rennihurð á milli stofu og borðstofu. Baðherbergi: með glugga, dúklagt, baðkar með sturtu.Herbergi: dúklagt, rúmgott með gluggum í tvær áttir og fataskáp.Í kjallara hússins eru:Sérgeymsla, 5,8 fermetrar að stærð, máluð gólf og með glugga.Sérgeymsla, 5,7 fermetrar að stærð, máluð gólf og með glugga.Sameiginlegur kyndiklefi, máluð gólf og með glugga.Sameiginlegt þvottaherbergi, máluð gólf og með glugga.Gangur og forstofa, máluð gólf, með útgengi á lóð.Ýmislegt. Íbúðin er komin að endurnýjun að innanverðu og skoða þarf glugga og gler í íbúðinni. Seljandi er dánarbú. Afhending er við kaupsamning.Húsið, steinhús byggt 1934, lítur vel út og virðist vera í nokkuð góðu ástandi. Búið er að endurnýja rafmagnstöflur bæði fyrir húsið og bílskúrinn. Lóðin, er skjólsæl suðurlóð, afgirt með steyptum veggjum.Bílskúr, 60,1 fermetrar, er raflýstur og með rennandi vatni. Gönguhurð er úr bílskúrnum út á suðurlóð. Nýlega hefur þak á bílskúr verið endurnýjað með pappa og listum á köntum. Staðsetning eignarinnar er virkilega góð, á grónum og eftirsóttum stað í Vesturbæ Reykjavíkur, þaðan sem stutt er í leikskóla, grunnskóla, Háskóla Íslands, Vesturbæjarlaug, verslanir, þjónustu, menningu og listasöfn.Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu