Domusnova og Árni Helga fasteignasali hafa fengið í einkasölu rúmgóða 2ja herbergja íbúð á horni Barónsstígs og Grettisgötu. Íbúðin er á þriðju hæð og er skráð 65,2fm að stærð og er geymsla í kjallara þar af 8,4fm. Íbúðin er á góðum stað, stutt í alla þjónustu, skóla, leikskóla, verslanir og veiting... Sýna meira
Domusnova og Árni Helga fasteignasali hafa fengið í einkasölu rúmgóða 2ja herbergja íbúð á horni Barónsstígs og Grettisgötu. Íbúðin er á þriðju hæð og er skráð 65,2fm að stærð og er geymsla í kjallara þar af 8,4fm. Íbúðin er á góðum stað, stutt í alla þjónustu, skóla, leikskóla, verslanir og veitingastaði í miðbænum. Mjög góð útleigueign eða fyrstu kaup. Eldhús hefur verið endurnýjað en huga þarf að endurnýjun baðherbergis og gólfefna auk þess sem alla glugga þarf að endurnýja. Næsta árs fasteignamat er 43.800.000kr.Komið er inní eignina af stigagangi sameignar og er þá stofa og eldhús á hægri hönd og snúa út að Grettisgötu. Á vinstri hönd er baðherbergi og beint af augum gangur og lítið hol sem leiðir inní svefnherbergið sem snýr til norðurs. Þar var áður eldhúsið en því hefur verið breytt af fyrri eigendum og er eignin ekki í samræmi við fyrirliggjandi teikningar (sjá reyndarteiknignar í eignaskiptayfirlýsingu). Í sameign er sérgeymsla, sameiginlegt þvottahús og þurrkherbergi auk sameiginlegrar geymslu garðáhaldsa og slíks. Stofa er ágætlega björt og rúmgóð og snýr til suðurs, parket er á gólfi, huga þarf að endurnýjun glugga.Eldhús er stórt með nýlegri innréttingu, parket á gólfi, huga þarf að endurnýjun glugga.Svefnherbergi er rúmgott með skáp, snýr til norðurs, parket er á gólfi, huga þarf að endurnýjun glugga.Baðherbergi er fremur lítið með baðkari og salerni auk vaska og er kominn tími á endurnýjun þess en vaskur og innrétting eru nýleg. Flísar á gólfi en eru brotnar á stöku stað, glugga þarf að endurnýja.Gangur/hol eru með parket á gólfi og glugga sem snýr til norðurs.Sameign: Þak var endurnýjað 2021 en kominn er tími til að huga að endurnýjun glugga í húsinu en skipt hefur verið um suma glugga í öðrum íbúðum. Lagnir eru að hluta til gamlar í húsinu og hluta til nýjar. Nýleg rafmagnstafla en ekki vitað um raflagnir að öðru leyti. Sameiginlegt þvottahús og þurrkherbergi er í kjallara auk lítillar geymslu fyrir garðáhöld og slíkt. Til að fá söluyfirlit strax smellið hérNánari upplýsingar veita:Árni Helgason löggiltur fasteignasali / s.663 4290 / Skrifstofa / s.527-1717 / Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.Um ástand einstakra eignarhluta:Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu: Nýtt - Eignin er nýbygging. Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður. Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti. Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti. Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.