Svavar Friðriksson, löggiltur fasteignasali, og Fasteignasalan Torg kynna með stolti: ***Á ÞESSUM EFTIRSÓTTA STAÐ Í 105 - REYKJAVÍK - SÉRINNGANGUR***Björt og vel skipulögð 3ja herbergja íbúð með sérinngangi í vinsælu hverfi í Hlíðunum
Um er að ræða rúmgóða 3ja herbergja íbúð á jarðhæð/kjallarahæð með sérinngangi. Íbúðin er staðsett á eftirsóttum stað í Hlíðahverfi, stutt frá helstu þjónustu og útivistarsvæðum.
Nánari lýsing eignar:Komið er inn um sérinngang á vinstri hlið hússins.
Forstofa: Flísalögð og snyrtileg.
Eldhús: Flísar á gólfi og falleg, endurnýjuð innrétting. Eldavél og háfur fylgja.
Hjónaherbergi: Rúmgott og bjart herbergi með parketi á gólfi og góðum fataskápum.
Svefnherbergi: Parketlagt herbergi af góðri stærð með innbyggðum skápum.
Stofa: Björt og rúmgóð með parketi á gólfi og góðu plássi fyrir setu- og borðstofuhorn.
Baðherbergi: Flísalagt með sturtuklefa, upphengdu salerni og innréttingu. Gluggi er á baðherberginu sem veitir góða loftræstingu og birtu.
Þvottahús: Sameiginlegt þvottahús með aðgengi beint úr íbúðinni. Sér rými er fyrir þvottavél og þurrkara fyrir hverja íbúð.
Geymsla: Góð geymsla í sameign sem er aðgengileg frá íbúðinni.
Lóð: Sameiginlegur garður sem íbúar hússins hafa afnot af.
Um er að ræða góð íbúð á jarðhæð/kjallara með sérinngangi. Stutt er í leikskóla, skóla og aðra þjónustu.
Allar nánari upplýsingar veitir Svavar Friðriksson, lgfs, í síma 623-1717 - svavar@fstorg.is.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Kaupandi eignarinnar greiðir skipulagsgjald þegar það verður lagt sem er 0,3% af endanlegu brunabótamati eignarinnar.
Skoðunarskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma
í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.
Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra.