Betri Stofan Fasteignasala og Þórir Skarphéðinsson lögmaður og lögg. fasteignasali kynna:
Mikið endurnýjuð og vel skipulögð 106,8 fm, fjögurra herbergja íbúð með sérinngangi og útgengi á suðursvalir úr stofu í eftirsóttu hverfi við Barmahlíð 12 í Reykjavík. Húsið hefur verið mikið endurnýjað að innan og utan á undanförnum árum. Þannig hafa gluggar verið endurnýjaðir, hús múrviðgert og málað, eldhús og bað endurnýjað auk þess sem gólfefni hafa verið endurnýjuð. Að auki hafa í gegnum árin ofnalagnir, ofnar, dren, lagnir undir húsi, rafmagn, þakjárn ofl. verið endurnýjað.
Heildarstærð íbúðar er 106.8 fm. Þar af er íbúðin skráð 104,3 fm., anddyri 2.5 fm. og sérgeymsla í þakrými ekki inn í birtri stærð.
Svalir eru til suðurs og ca. 13 fm. geymsluskúr á lóð sem fylgir þessari íbúð. Um er að ræða hús sem er hannað af Sigvalda Thordarson.
Nánari lýsing eignar:Gengið eru um sérinngang og upp teppalagðan stiga að íbúðinni. Anddyri með fatahengi. Rúmgott hol/gangur með tveimur skápum, parket á gólfi. Á vinstri hönd er nýleg eldhúsinnrétting, rúmgóður borðkrókur og parket á gólfi. Við hliðina á eldhúsi er samliggjandi stofa og borðstofa með parketi á gólfi og stórum gluggum. Útgengi út á sólríkar svalir. Tvö svefnherbergi með fataskápum, parket á gólfi. Endurnýjað baðherbergi með fallegum flísum, veggföstu salerni, hvítri innréttingu og baðkari með sturtu. Einnig er pláss fyrir þvottavél á baðherberginu. Þakgeymsla er yfir íbúðinni sem er í séreign þessarar íbúðar. Auðvelt væri að bæta við aukaherbergi í íbúð. Í kjallara er snyrtilegt, sameiginlegt þvottaherbergi þar sem hver íbúð hefur sína þvottavél.
Umtalsverðar endurbætur hafa verið gerðar á eigninni á undanförnum árum en að sögn seljanda var:
Hús múrviðgert og málað 2025
Allir gluggar í íbúð og sameign endurnýjaðir 2025
Frárennslislögn frá eldhúsi 2024
Eldhús endurnýjað 2020 (Innrétting og raflagnir)
Gólfefni endurnýjað 2020 (Parket á stofu, eldhúsi, gangi og herbergjum)
Skápar endurnýjaðir 2020 (Sérsmíðaðir skápar í herbergjum og gangi)
Skv. Upplýsingum frá fyrri eiganda hefur þakjárn verið endurnýjað ásamt dreni og lögnum undir húsi. Einnig hafa ofnalagnir, ofnar og rafmagn verið endurnýjaðir. Baðherbergi var einnig endurnýjað af fyrri eiganda.
Í kjallara er snyrtilegt, sameiginlegt þvottaherbergi þar sem hver íbúð hefur sína þvottavél ásamt sérgeymslum.
Nánari upplýsingar veitir Þórir Skarphéðinsson lögmaður og löggiltur fasteignasali, í síma 8449591, tölvupóstur thorir@betristofan.is.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.