Finnbogi Kristjánsson lögg. fasteignasali co FRÓN fasteignamiðlun sýnir eignina s. 897-1212. finnbogi@fron.is
Um er að ræða rúmgóða, 225,5 fm, sér íbúðarhæð, auk 17,6 fm forstofu, samtals 243,1 fm. Þessa hæð má nýta sem gistipláss með 5-6 herbergjum. Neðri hæð nánast fullbókuð fyrir árið 2026.
Sex herbergi eru í íbúðinni, en mögulega er hægt að hafa átta herbergi, til útleigu. Auk þess er stórar svalir í suður með skjólveggjum. Þessi eign hentar stórri fjölskyldu eða til útleigu fyrir ferðamenn. Íbúðin selst með neðri hæð sem er gistiíbúðir. Nóg pláss er til að byggja 185 fm við þessa hæð á „svalagólfi“, en halda eftir verönd í suður.
Nánari lýsing: Mjög
rúmgóð íbúð með sérinngangi á efri hæð. Gengið upp
sér útitröppur að ofanverðu.
Komið er inn í
rúmgóða forstofu með múrflotuðu gólfi. Hægt er að ganga þar inn í íbúðina og út á
svala-verönd í suður. Sex herbergi,
stór stofa, tvennar snyrtingar, ásamt búri/þvottahúsi og stóru eldhúsi. Rúmgott bað með góðum sturtuklefa. Innrétting er ljósleit og allt flísalagt, hvít tæki. Ljósar flísar á gólfi.
Önnur snyrting með flísum á gólfi, með hvítum tækjum.
Sér sturtubað með flísum.
Herbergin eru öll með parketi og flest með skápum.
Gangur og hol er með parketi.
Eldhús, allt með tækjum og plássmikilli innréttingu með ljósum físum á gólfi.
Ísskápur og uppþvottavél fylgja með, auk annarra eldhúsverkfæra. Góð vinnuaðstaða og plássmikil borðstofuaðstaða í eldhúsi.
Stofan er björt og hátt til lofts með parketi. Þarna er mjög gott útsýni yfir sjóinn, upp til fjalla og inn og út fjörðinn. „Bjartir“ gluggar.
Aðkoman er snyrtileg og auðveld. Húsin eru staðsett við aðalbraut bæjarins og er í góðu göngufæri við alla þjónustu í bænum.
Góð sér bílastæði og opið rými við húsin sem gefur gott útsýni út og inn fjörðinn.
Gott skipulag eru í húsinu og auðvelt er að þrífa. Húsið er mjög hagstætt í rekstri og viðhaldi. Vel hljóð- og varmaeinangrað.
Húsin eru ein af nokkrum byggingum á Seyðisfirði sem hafa verið endurgerð. Auka má nýtingagetu hússins með breytingum.
Mögulegur byggingaréttur fylgir með á veröndinni, sem stækkar rýmið verulega og eykur þannig not hússins í heild.
Neðri hæð til gistingar er einnig til sölu, sem er 194,7 fm og 84,2 fm verslunarhúsnæði.
Finnbogi Kristjánsson lögg. fasteigna- skipa og fyrirtækjasali og lögg. leigumiðlari hefur starfað við fasteignasölu í 40 ár og er eigandi af FRÓN fasteignamiðlun. Sérhæfing í sölu fasteigna, hótela, fyrirtækja, skipa, lands og bújarða. Lögn reynsla af veðmötum á fasteignum og fyritækjum. Einnig í fjármálum heimilanna og í rekstri fyrirtækja. Leigumiðlun fasteigna, íbúða og atvinnuhúsnæðis.