Nýtt á skrá! Austurkór 94 í Kópavogi - Frábær fjölskyldu- og útsýnisíbúð með sérinngangi, þremur svefnherbergjum, stórri afgirtri verönd og þvottaherbergi inn af íbúð. Rúmgóð og vel skipulögð íbúð!
Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynnir virkilega glæsilega og vel skipulagða 127,7 fermetra 4ra herbergja búð á 1. hæð með sérinngangi og stórum afgirtum sérafnotareiti í fallegu fjölbýlishúsi við Austurkór 94 í Kópavogi. Alrými er opið og með afar glæsilegu útsýni að Snæfellsjökli, Öskjuhlíð og víðar. Útgengi á stóran afgirtan sérafnotareit frá stofu. Sér þvottaherbergi innan íbúðar. Sérgeymsla er 8,3 fermetrar að stærð og með glugga.
Lóðin er afar snyrtileg með tyrfðum flötum á baklóð og hellulögðum stéttum/malbikuðum stæðum fyrir framan hús. Hjóla- og vagnageymsla er staðsett á jarðhæð hússins.
Frábært staðsetning í næsta nágrenni við golfvöll GKG, Kórinn íþróttasvæði, grunnskóla/leikskóla og verslun og þjónustu. Glæsileg útivistarparadís í bakgarðinum með fallegum göngu- og hjólaleiðum sem liggja m.a. að Elliðavatni og inn í Heiðmörk og víðar.
Nánari lýsing:Forstofa: Er rúmgóð, með flísum á gólfi og góðum skápum. Sérinngangur er í íbúð.
Stofa: Er rúmgóð, með harðparketi á gólfi og opin við eldhús. Rúmar vel setustofu og borðstofu. Gluggar til vesturs og útgengi á stóran sérafnotareit.
Sérafnotareitur: Er stór og afgirtur. Glæsilegt útsýni er frá verönd út á sundin, Snæfellsnes og yfir höfuðborgarsvæðið.
Eldhús: Með harðparketi á gólfi og fallegri HTH eldhúsinnréttingu með góðu skápaplássi. Stál AEG bakaraofn, spansuðu helluborð og vifta. Tengi fyrir uppþvottavél. Eldhús er opið við stofu og er útgengi á hellulagða verönd.
Þvottaherbergi: Er vel staðsett inn af eldhúsi. Innrétting/upphækkun undir þvottavél og þurrkara. Flísar á gólfi og rými fyrir þvottagrind/snúrur. Opnanlegur gluggi er á þvottaherbergi.
Hjónaherbergi: Er stórt, með harðparketi á gólfi, góðum skápum og glugga til suðausturs.
Baðherbergi: Er rúmgott, með flísum á gólfi og veggjum. Gólfhiti á baðherbergi. Baðkar, flísalögð sturta með glerþili og handklæðaofn. Góð innrétting við vask, skápur, upphengt salerni og útloftun.
Svefnherbergi II: Er rúmgott, með harðparketi á gólfi, skápum og glugga til suðausturs.
Svefnherbergi III: Er rúmgott, með parketi á gólfi, skápum og glugga til suðausturs.
Geymsla: Er staðsett við verönd (sérafnotareit) og er 8,3 fermetrar að stærð með opnanlegur glugga.
Hjóla- og vagnageymsla: Er sameiginleg og er staðsett í sameign hússins á jarðhæð.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali og lögfræðingur í síma 849-0672 eða á netfanginu heimir@fastlind.is