Miklaborg kynnir: Fallegt og vel skipulagt raðhús á einni hæð á einstaklega rólegum stað í Kórahverfi Kópavogs. Húsið skiptist í forstofu, sjónvarpshol, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, gestasnyrtingu, eldhús og stofu með útgengi á stóran pall með heitum potti. Lóðin er við óbyggt svæði, þannig að útsýni er frá pallinum yfir kyrrláta sveitina.
Viðar Böðvarsson, viðskiptafræðingur, lögg. fast. vidar@miklaborg.is s.6941401
Anddyri er flísalagt með fataskápum.
Hol er með parketi og gengt í flísalagða gestasnyrtingu frá því.
Eldhús er með fallegri innréttingu með eyju. AEG spanhelluborð og AEG ofn í vinnuhæð. Innbyggð uppþvottavél og ísskápur með frysti.
Stofa með parketi og útgengi á stóran pall með heitum potti. Lítill skúr á lóð fyrir garðverkfærin Frá pallinum er gengt út í garð sem liggur að ósnertri náttúru.
Þrjú svefnherbergi eru í húsinu og gengt er frá hjónsherberginu á pallinn. Skápar eru í öllum herbergjum.
Baðherbergi er með "walk in" sturtu, flísum á gólfi og vegg við sturtuna..
Þvottaherbergi er með flísum á gólfi og innréttingu.
Innbyggður bílskúr er með hita, vatni og rafmagni og geymslulofti.
Gólfefni hússins er eikarparket og flísar á forstofu, baðherbergjum og þvottahúsi. Innréttingar eru frá Innex, kvartz steinn í eldhúsi og baðherbergi.
Álgluggar og steinklæðning á húsi. Einstök staðsetning með sveitina í bakgarðinum.
Viðar Böðvarsson, viðskiptafræðingur, lögg. fast. vidar@miklaborg.is s.6941401






Kíktu á dæmið með Aurbjörgu































| Dags. | Stærð | Fermetraverð | Ásett |
|---|---|---|---|
| 12.06.2026 Nánar | 160 m² | 925.000 kr. | 148.000.000 kr. |
| Dags. | Kaupverð |
|---|---|
| 16. október 2014 | 50.900.000 kr. |