Björt og skemmtileg þriggja-fjögura herbergja íbúð á fyrstu hæð í nýlegu fjölbýli á Selfossi
Húsið er staðsteypt, einangrað að utan og veggir klæddir sléttu- og báruðu áli í bland.
Gluggar eru ál/tré gluggar, hvítmálað timbur að innan en álklæddir að utan.
Íbúðin sem er 82,4 m2 að stærð er björt og vel skipulögð.
Nánari lýsing:
Forstofa/anddyri: Góður fataskápur parket er á gólfi.
Stofa: Er rúmgóð og björt, parket er á gólfi og þaðan útgengt út á stóran og fínan pall, u.þ.b 28 fm.
Eldhús: Er í opnu rými með stofu parket er á gólfi. Stór innrétting með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél. Búið er að bæta við skápum í eldhús frá HTH.
Hjónaherbergi: Parketlagt og þar er góður fataskápur.
Barnaherbergi: Parketlagt og fataskápur
Baðherbergi: Flísar á gólfi og hluta veggja. Gólfsturta, upphengt salerni, handlaug, handklæðaofn og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Kvartsteins borðplata. Búið er að bæta við skápum yfirt vaski, í kringum þvottavél og þurrkara auk kústaskáps.
Geymsla: Er innan íbúðar er með glugga og væri hægt að nýta sem þriðja svefnherbergið eða sem skrifstofu.
Hiti er í stéttum að húsi. Bílastæði eru malbikuð og frágengin.
Sorpskýli er á lóð við bílaplan. Hleðslustöðvar fyrir rafbíla eru á bílaplani.
Nánari upplýsingar og bókið skoðun í gegnum tölvupóst lmh@tolvupostur.net eða hringið í síma 698 9400
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er: 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga. 0,4% fyrir fyrstu kaupendur og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. kr. 3.800,- hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda skv. gjaldskrá.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.






Kíktu á dæmið með Aurbjörgu









| Dags. | Stærð | Fermetraverð | Ásett |
|---|---|---|---|
| 15.06.2026 Nánar | 82,4 m² | 697.816 kr. | 57.500.000 kr. |
| Dags. | Kaupverð |
|---|---|
| 25. ágúst 2023 | 51.900.000 kr. |
| 7. september 2022 | 48.077.000 kr. |