Fasteignasalan Hvammur 466 1600
Austurbrú 2 íbúð 205 - Falleg 2ja herbergja íbúð á 2. hæð í nýlegu lyftuhúsi og með sér stæði í bílageymslu í miðbæ Akureyrar - stærð 53,0 m²Íbúðin skiptist í forstofu/gang, eldhús og stofu í einu alrými, svefnherbergi, baðherbergi auk geymslu í kjallara, sameignlegs þvottahús og sér stæðis í bílageymslu.
Forstofa og gangur eru með harðparketi á gólfi og góðum spónlögðum eikar fataskáp.
Eldhús, tvílit innrétting, spónlögð eik og hvítir sprautulakkaðir efri skápar og ljós steinn á bekkjum. Siemens ofn og helluborð.
Stofa og eldhús eru í opnu rými þar sem ljóst harðparket er á gólfi og hurð út á steyptar norður svalir.
Baðherbergi er með gráum flísum á gólfi og hluta veggja, hvítri innréttingu og speglaskáp og hvítri steinbekkplötu. Upphengt wc, walk-in sturta og handklæðaofn.
Svefnherbergi er með ljósu harðparketi á gólfi og vönduðum spónlögðum eikar fataskáp. Stærð svefnherbergis er skv. teikningum 9,8 m².
Sér geymsla er í kjallaranum, skráð 4,2 m² að stærð.
Sameignilegt þvottahús er í kjallaranum.
Annað- Innfelld led lýsing er í loftum
- Ljós steinn er á bekkjum í eldhúsi og á baðherbergi
- Mynddyrasími
- Eignin er í einkasölu
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.