Fasteignasalan Hvammur 466 1600
Ásvegur 5 - Vel skipulagt 5 herbergja einbýlishús á einni hæð með bílskúr á Hauganesi - samtals 185,2 m², þar af er bílskúr skráður 38,4 m²
** Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning **Eignin skipstist í tvær forstofur, eldhús, sjónvarpshol, stofu, fjögur svefnherbergi, baðherbergi og tvær geymslur auk bílskúrs.
Forstofur eru tvær. Aðalinngangurinn er með flísum á gólfi og spónlögum skáp. Annar inngangur er á austurhliðinni milli íbúðarhúss og bílskúrs. Þar er lakkað gólf og tengi fyrir þvottavél.
Eldhús, nýleg hvít innrétting með góðu skápa- og bekkjarplássi og dökkri bekkplötu. 45 cm uppþvottavél og örbylgjuofn eru innfelld í innréttingu og fylgja með við sölu eignar. Harðparket er á gólfi og borðkrókur með glugga til norðurs.
Stofa og sjónvarpshol eru með harðparketi á gólfi og í stofu eru loft tekin upp og með innfelldri lýsingu. Útgangur er úr stofu til suðurs á steypta verönd með timbur skjólvegg.
Svefnherbergin eru fjögur, öll með harðparketi á gólfi og tvö með fataskápum.
Baðherbergi er með dökkum flísum á gólfi og hvítum á veggjum, hvítri innréttingu með tveimur handlaugum, upphengdu wc, baðkari, sturtu, handklæðaofni og opnanlegum glugga. Hiti er í gólfi.
Tvær geymslur, báðar með lökkuðu gólfi og opnanlegum glugga. Minni geymslan er nýtt sem þvottahús í dag. Hleri er i loftinu í stærri geymslunni upp á loft.
Bílskúrinn er skráður 38,4 m² að stærð. Þar er lakkað gólf og hillur. Rafdrifin innkeyrsluhurð og sér gönguhurð á langhliðinni. Fyrir framan er hellulagt bílaplan með hitalögnum í, lokað kerfi.
Annað- Búið er að taka inn ljósleiðara.
- Stórt hellulagt bílaplan.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.