Ásvegur 1, 760 Breiðdalsvík, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 217-8938 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðarréttindum. Snyrtilegt 65,6 fm. einbýlishús með stórum sólpalli ( ca. 50 fm. ) auk 7 fm. smáhýsis sem er utan fermetra hússins. Húsið er einangrað að utan með timburklæðningu. Lóðarleigusamningur nýr. Eignin er veðbandalaus.
Nánari lýsing: Komið er í anddyri. Gangur inn af. Til hægri er eldhús með ljósri innréttingu. Baðherbergið er nýlegt, hreinlætistæki og flísalagnir. Gluggi er á baði. Svefnherbergi með skápum , parket á gólfi. Til vinstri úr gangi er björt og rúmgóð stofa og borðastofa. Loft eru viðarklædd og upptekin. Auðvelt að bæta við aukaherbergi. Parket á gólfum. Nýlegur sólpallur sem snýr í suður með góðum skjólveggjum. Lítið útihús við enda pallssins. Húsið er vel staðsett í miðju þorpsins. Á Breiðsdalsvík er ýmis þjónusta, góð matvöruverslun í göngufjarlægð. Íþróttahús og sundlaug. Grunnskóli,leikskóli og flott hótel. Breiðdalur er ein fallegasta sveit landsins með fjölbreytta útivistarmöguleika, veiði, gönguleiðir og fl.