Pétur Ásgeirsson löggiltur fasteignasali hjá RE/MAX fasteignasölu kynnir: Mjög fallega og vel skipulagða 3ja herbergja 66,9 fm risíbúð á 4. hæð við Ásvallagötu 25 í Reykjavík.Íbúðið er í leigu og leigjendur vilja vera áfram ef það er hægt.
// Íbúðin mikið endurnýjuð.
// Mjög góð staðsetning og stutt í alla þjónustu.
// Fallegt útsýni.
// Stórar suður svalir.
// Þvottahús innan íbúðar.Eftirfarandi framkvæmdir voru gerðar að sögn seljanda frá mars 2020.-Baðherbergið var innréttað að fullu. Veggirnir og gólfið flísalagt, nýtt bað, nýtt klósett og nýr vaskur. Nýjar lagnir tengdar og hiti sett í gólf.
-Eldhúsinu. Nýtt parket og ný eldhúsinnrétting sem passar vel við stærð íbúðinnar ásamt því að veggjum var skipt út. Nýjar lagnir tengdar í gegnum nýja svefnherbergið. (Þeir fara í gegnum vegginn í svefnherberginu - það má alls ekki negla á það svæði).
-Það var geymsla þar sem svefnherbergið var beint á móti inngangi. Það var parketlagt og veggirnir lagfærðir.
-Stofan var parketlögð og nýir veggir settir upp á móti eldhúsi, svefnherbergi og að utan.
-Hurð fram á gang úr gamla svefnherbergi var tekin út og nýr veggur gerður (sérð á hinum hæðunum að hurðin er ennþá til staðar inn í svefnherbergið).
-Nýir Velux þakgluggar í risi (einn á baðherbergi, tveir í nýja svefnherbergi og einn í eldhúsi), nýjir gluggar í eldhúsi, stofu og gamla svefnherbergi.
-Nýjar svalir og svalahurð.
-Þakið var málað, húsið var múrað og málað að utan og stigagangur tekinn alveg í gegn.
-Garður lagaður til, girðing sett up ásamt skýli fyrir sorptunnur. Tilboð hefur verið samþykkt í hellulagningu frá útgangi út í garð að göngustíg (Það er til fyrir því í hússjóð).
350 þúsund í hússjóð - ca. 150 þúsund fer í hellulagningu og 150 þúsund í garðþjónustu. Ca 8.500 greitt á mánuði. Við greiðum tryggingar og þrif í sameign mánaðarlega og það er afgangur eftir það.
Nánari lýsing:Gengið er inn í teppalagðan stigagang.
Anddyri: Er parketlagt með fatahengi.
Stofan: Parket á gólfi, er rúmgóð með útgengi út á suðusrvalir.
Eldhúsið: Parket á ´golfi, ný falleg innrétting með fínu skápaplássi og með góðum borðkrók. Stæði fyrir þvottavél og þurrkara.
Herbergi 1: Parket á gólfi og með fataskáp.
Herbergi 2: Parket á gólfi.
Baðherbergið: Flísalagt í hólf og gólf, falleg innrétting, baðkar,handklæðaofn og upphengt WC.
Hér er um að ræða fjölskylduvæna eign í góðu íbúðarhverfi í vesturbænum. Göngufæri er i leik-og grunnskóla og flesta þjónustu og stutt er í fallegar gönguleiðir í nærumhverfinu.
Nánari upplýsingar gefur Pétur Ásgeirsson löggiltur fasteignasali í síma 893-6513 / petur@remax.isGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.