Smelltu hér Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – Fáðu tilboð í söluferlið - Skráðu eignina þína í dag og tryggðu þér forskotið.
*
ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu eignina: Ásholt 2, 105 Reykjavík, birt stærð 49.1 fm. Eignin samanstendur af forstofu, eldhúsi, stofu, svefnherbergi og baðherbergi. Sér geymsla (5.2fm) ásamt stæði í bílageymslu.
** Tilvalin fyrstu kaup
** Bílastæði í bílakjallara
** Þakjárn endurnýjað 2025Íbúðin er staðsett á 6. hæð í íbúðarkjarna við rætur miðbæjarins. Sameiginlegur og vel gróinn garður fyrir allar íbúðir kjarnans sem er rólegur og aðeins aðgengilegur íbúum. Leiksvæði, verönd og bekkir eru til staðar í garðinum. Húsvörður er í húsinu, vel rekið húsfélag og öll sameign og samskipti milli nágranna til fyrirmyndar.
Nánari upplýsingar veitir/veita:
Sigurjón Rúnarsson Löggiltur fasteignasali, í síma 7719820, tölvupóstur sigurjon@allt.is.
Páll Þorbjörnsson Löggiltur fasteignasali, í síma 560-5501, tölvupóstur pall@allt.is.Nánari lýsing á eigninni.Komið er inn í hol með forstofuskáp. Í eldhúsi rauð háglans innrétting með góðu skápaplássi, borðplata er gráyrjótt og svart gler er á milli skápa og tengi fyrir borðuppþvottavél. Björt og rúmgóð stofa með útgengi á suðursvalir með fallegu útsýni. Spegill í stofu er einnig niðurfellanlegt borð. Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf, innrétting með handlaug, tengi fyrir þvottavél, upphengt salerni og sturtuklefi. Svefnherbergi með góðu skápaplássi og rúmgafl með náttborðum og ljósum. Harðparket er á stofu,eldhúsi, holi og svefnherbergi.
Sameiginlegt þvottahús og þurrkherbergi er í kjallara, ásamt dekkja- og kerrugeymslu, hjólageymslu, bílakjallara og bílaþvottaaðstöðu.
Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
Kostnaður kaupanda:1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Smelltu hér Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – Fáðu tilboð í söluferlið - Skráðu eignina þína í dag og tryggðu þér forskotið.