Fasteignasalan TORG kynnir: Ásakór 7, 203 Kópavogi, íbúð 02-05. Falleg, björt og vel skipulögð þriggja herbergja íbúð á 2. hæð með sérinngang af svölum.Eignin er skráð 89,1 fm skv. Þjóðskrá Íslands og skiptist í forstofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi, eldhús og rúmgott alrými með stofu/borðstofu. ... Sýna meira
Fasteignasalan TORG kynnir: Ásakór 7, 203 Kópavogi, íbúð 02-05. Falleg, björt og vel skipulögð þriggja herbergja íbúð á 2. hæð með sérinngang af svölum.Eignin er skráð 89,1 fm skv. Þjóðskrá Íslands og skiptist í forstofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi, eldhús og rúmgott alrými með stofu/borðstofu. Útgengt úr stofu út á rúmgóðar svalir og af þeim er útgengt út í sameiginlegan garð hússins. Sér geymsla sem fylgir eigninni,ásamt sameiginlegri vagna- og hjólageymslu í sameign. Falleg eign í góðu lyftuhúsi á vinsælum stað í Kópavogi, þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, leik- og grunnskóla. Nánari upplýsingar veitir Elfa Björk, löggiltur fasteignasali, s: 692-0215 og NÁNARI LÝSING:Forstofa: Snyrtileg forstofa, flísar á gólfi og rúmgóður fataskápur sem nær upp í loft.Þvottahús: Innangengt frá forstofu, tengi fyrir þvottavél og þurrkara, flísar á gólfi. Barnaherbergi: Parket á gólfi og fataskápur sem nær upp í loft. Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum. Baðkar með sturtu, rúmgóð innrétting og speglaskápur, salerni og handklæðaofn. Hjónaherbergi: Rúmgott, góðir fataskápar sem ná upp í loft, parket gólfi.Eldhús: Vel skipulagt, góð innrétting með skápum sem ná upp í loft, bakarofn í vinnuhæð, flísar á gólfi. Stofa/borðstofa: Í mjög rúmgóðu og björtu alrými. Parket á gólfi.Svalir: Frá stofunni er útgengt á 13,2 fm svalir, af þeim er útgengi út í sameiginlegan garð hússins. Geymsla: 9 fm geymsla í sameign hússins. Björt og falleg eign þar sem stutt er í leik- og grunnskóla, alla helstu þjónustu, Guðmundarlund, Elliðavatn og Heiðmörk.Sameign snyrtileg, búið að koma fyrir hleðslustöðvum á bílastæði. Nánari upplýsingar veitir Elfa Björk, löggiltur fasteignasali í síma 692-0215 eða Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa á fasteign:1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila. 2. Þinglýsingargjald kr. 2.500.- kr. af hverju skjali. 3. Lántökukostnaður lánastofnunar - mismunandi eftir lánastofnunum. 4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. samningi.Skoðunarskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð,og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.