Ásakór 12, 203 Kópavogur er einstaklega falleg og vel skipulögð 4 herbergja íbúð á 3. hæð með stórum svölum í steinsteyptu húsi frá 2006. Um er að ræða 147,4 fermetra eign sem skiptist í 114 fermetra íbúðarrými og 33,4 fermetra bílskúr og geymslu. Eignin skiptist í forstofu, þvottahús, baðherbergi,... Sýna meira
Ásakór 12, 203 Kópavogur er einstaklega falleg og vel skipulögð 4 herbergja íbúð á 3. hæð með stórum svölum í steinsteyptu húsi frá 2006. Um er að ræða 147,4 fermetra eign sem skiptist í 114 fermetra íbúðarrými og 33,4 fermetra bílskúr og geymslu. Eignin skiptist í forstofu, þvottahús, baðherbergi, 3 svefnherbergi, eldhús, stofu/borðstofu og bílskúr í sameign. Góð bílastæði fyrir framan húsið og þá fylgir sérmerkt stæði í lokaðri bílageymslu framan við bílskúr.Íbúðin er staðsett rétt við golfvöll GKG. Sérstæði í lokaðri bílageymslu og góður sérbílskúr inn af stæði.Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 147,4 fm, þar af er íbúðarrými 114,0 fm og bílskúr og geymsla 33,4 fm Nánari lýsingForstofa: Gengið er inn í góða forstofu með flísum á gólfi.Eldhús: Stórt eldhús og með hvítum HTH innréttingum og AEG tækjum. Flísar á gólfi.Stofa / borðstofa: Björt og rúmgóð með útgengi á svalir til suðurs og austurs. Parket á gólfi.Svefnherbergi I: Um 12,7 fm. með fjórföldum hvítum fataskáp frá HTH. Parket á gólfi. Svefnherbergi II: Um 10.0 fm. með tvöföldum hvítum fataskáp frá HTH. Parket á gólfi.Svefnherbergi III: Um 10,0 fm. með tvöföldum hvítum fataskáp frá HTH. Parket á gólfi.Baðherbergi: Stórt og rúmgott með hvítri innréttingu, upphengdu salerni, handklæðaofni og hornbaðkari. Flísar í hólf og gólf. Þvottahús: Inn af forstofu. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Vinnuvaskur. Flísar á gólfi.Svalir: Um 14 fm skjólgóðar svalir til suðurs og austurs.Geymsla: Um 6,2 fm sérgeymsla inn af bílskúr í kjallara hússins. Bílageymsla: Sérmerkt stæði í lokaðri bílageymslu framan við bílskúr. Hleðslustöð frá Ísorku.Lóðin: Snyrtileg og vel hirt lóð í sameign.Húsið er á góðum og fjölskylduvænum stað rétt við golfvöllinn og í göngufæri við leikskólann Baug, Hörðuvallaskóla og Kóraskóla. Mjög góðar samgöngur og stutt í strætó, alla helstu þjónustu, verslanir og iðandi íþróttalíf í Kórnum. Athygli er vakin á því að eigandi eignarinnar er hluthafi í Procura fasteignasölu í gegn um einkahlutafélag.Allar nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Procura fasteignasölu á netfang eða í síma 497 7700Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum og hvetjum við væntanlega kaupendur til að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.Opinber gjöld við kaup: Kostnaður kaupanda vegna kaupa á þessari eign er stimpilgjald kaupsamnings, 0,4% af fasteignamati fyrir fyrstu kaupendur, 0,8% fyrir aðra einstaklinga og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjöld eru 2.700 kr. fyrir hvert skjal. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.