LANDMARK fasteignamiðlun ehf. og Andri Sigurðsson Löggiltur fasteignasali (s: 690 3111 / ) og félagsmaður í Félagi fasteignasala kynna í einkasölu: Virkilega falleg, mikið endurnýjuð og mjög vel skipulögð 4ra herbergja íbúð á 1. hæð ásamt rúmgóðu bílastæði í lokuðum bílakjallara við Ásakór 12, 203 ... Sýna meira
LANDMARK fasteignamiðlun ehf. og Andri Sigurðsson Löggiltur fasteignasali (s: 690 3111 / ) og félagsmaður í Félagi fasteignasala kynna í einkasölu: Virkilega falleg, mikið endurnýjuð og mjög vel skipulögð 4ra herbergja íbúð á 1. hæð ásamt rúmgóðu bílastæði í lokuðum bílakjallara við Ásakór 12, 203 Kópavogi. Glæsilegt eldhús sem var endurnýjað árið 2023 ásamt harðparketi frá Harðviðarval - þrjú rúmgóð svefnherbergi - ný innfelld ljós í alrými ásamt nýjum rofum og tenglum - stór afgirtur ca 50 fm sérafnotaréttur með verönd sem snýr í suður - þvottahús innan íbúðar - mjög góð 10,1 fm sérgeymsla í sameign. Screengluggatjöld í alrými og plíseraðar myrkragluggatjöld í svefnherbergjum frá Álnabæ fylgja með í kaupunum ásamt öllum innbyggðum ársgömlum heimilistækjum, uppþvottavél, ísskápur, vínkælir, frystir og tveir ofnar. Öll heimilitækin eru frá Siemens fyrir utan vínklælinn og helluborðið en helluborðið er frá Bora og er það með innbyggðum gufugleypi.Eignaskiptasamningur: Eignin er forstofa, þvottaherbergi, bað, stofa, verönd, eldhús, herbergi, herbergi og hjónaherbergi. Samtals 114 fm. Íbúðin á geymslu 00-01, alls 10,1 fm. Íbúðinni fylgir sérafnotaflötur af lóðinni. Íbúðinni fylgir stæði í bílageymslu í kjallara 5,2632% B19 og B28 á lóð. Íbúðin á hludeild í sameigna sumra og sameign allra.Nánari lýsing eignar: Komið er inn í forstofu. Innaf forstofunni er þvottahús með skolvaski og hillum. Frá forstofu tekur við parketlagður gangur, fataskápur. Þrjú rúmgóð svefnherbergi og eru þau öll með fataskáp. Flísalagt baðherbergi í hólf og gólf, hvít innrétting, hornbaðkar, handklæðaofn og upphengt salerni. Björt og rúmgóð stofa og borðstofa með útgangi út á suðurverönd með stimplaðri steypu. Glæsilegt nýlega endurnýjað eldhús með fallegri innréttingu frá GKS, kvartsteinn frá S Helgasyni. Eigninni fylgir rúmgóð sérgeymsla í sameign ásamt aðgengi að sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu. Mjög stórt bílastæði í lokuðum bílakjallara. Gólfefni íbúðar: ársgamalt Quick-step parket frá Harðviðarval á öllum gólfum fyrir utan baðherbergi en þar eru flísar. Þetta er mjög björt og falleg eign þar sem er stutt í alla helstu þjójustu t.a.m Krambúðina, leikskólann Kór, Baug og Hörðuvallaskóla ásamt útivistarperlurnar Guðmundarlund, Elliðavatn og Heiðmörk. Allar nánari upplýsingar veitir og bókun á skoðunartíma: Andri Sigurðsson Löggiltur fasteignasali í síma 690 3111 eða Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. LANDMARK fasteignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.4. Umsýslugjald kaupanda kr. 79.000 m/vsk. 5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunarPanta FRÍTT söluverðmat