Eignamiðlun kynnir:Björt og skemmtileg, mikið endurnýjuð þriggja herbergja endaíbúð á vinsælum stað í Ártúnsholtinu. Rúmgóð og björt stofa með aukinni lofthæð, tvö góð svefnherbergi, stórar skjólgóðar svalir. Íbúðin er 76,6 fermetra með geymslu innan íbúðar en einnig fylgir hlutdeild í sameiginlegum... Sýna meira
Eignamiðlun kynnir:Björt og skemmtileg, mikið endurnýjuð þriggja herbergja endaíbúð á vinsælum stað í Ártúnsholtinu. Rúmgóð og björt stofa með aukinni lofthæð, tvö góð svefnherbergi, stórar skjólgóðar svalir. Íbúðin er 76,6 fermetra með geymslu innan íbúðar en einnig fylgir hlutdeild í sameiginlegum geymslum. Sérinngangur af svalagangi. Frábær staðsetning, stutt í leikskóla og skóla ásamt náttúruperlu Elliðarárdalsins.Allar nánari upplýsingar veitir Ólafur H. Guðgeirsson, MBA rekstrarhagfræðingur, lgfs. í síma 663-2508 eða .Húsið er vel staðsett nærri leikskóla og grunnskóla. Stutt í margskonar útivistarmöguleika.Íbúðin er sérlega vel skipulögð og nýtist vel, með gluggum í þrjár áttir og stórum útbyggðum glugga í stofu, tveimur rúmgóðum herbergjum, geymslu innan íbúðar þar sem eru tengi fyrir þvottavél. Sérinngangur er af svölum.Íbúðin skiptist í anddyri með fataskáp, hjónaherbergi með stórum fataskáp, barnaherbergi, flísalagt baðherbergi með baðkari og innréttingu, geymslu sem einnig nýtist sem þvottahús, rúmgóða og bjarta stofu og opið eldhús með stórri hvítri innréttingu. Útgengi er á stórar svalir úr stofu, en gott útsýni er af svölum og úr stofu.Eignin hefur, að því er séð verður, fengið ágætt viðhald. Að sögn eiganda var hús og þak málað að utan 2018. Skipt um tréverk á svölum, bæði í séreign og sameign sama ár. 2019 var skipt út gólfefni á baðherbergi auk þess sem innréttingar, vaskur og öll blöndunartæki voru endurnýjuð. Flísar á baðveggjum voru málaðar með tveggja þátta skipamálningu sem er einstaklega slitsterk og vinyl flísar með marmaraáferð settar á gólfið. 2021 skipt um allt annað gólfefni í íbúðinni og gólflistar endurnýjaðir. Sett var harðparket á gólf í alrými og geymslu og slitsterkar vinyl flísar í forstofu. Nýr fataskápur settur í forstofu ásamt veggfestri innréttingu.Falleg, mjög vel nýtt eign á flottum stað.Kostnaður kaupanda af kaupum:1. Stimpilgjald af kaupsamningi er fyrir einstaklinga 0,8% af heildarfasteignamati eignar. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.2. Stimpilgjald af kaupsamningi fyrir lögaðila er 1,6% af heildarfasteignamati eignar.3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, veðleyfi og mögulega fleiri skjölum. - kr. 2.500 af hverju skjali.4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.5. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kaupendasamningi.Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Eignamiðlun fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Kaupanda er bent á að nýta sér þjónustu fagmanna við skoðun fasteigna, en mælt er með því að kaupandendur fasteigna fái óháðan fagaðila til að framkvæma formlega ástandsskoðun á eignum sem gert er tilboð í.Eignamiðlun fasteignasala | Grensásvegur 11 | 108 Reykjavík | Sími 588 9090 | www.eignamidlun.isÁbyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. Eignamiðlun Grensásvegi 11 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögumHeimasíða EignamiðlunarEignamiðlun á Facebook