LIND Fasteignasala & Guðmundur Hallgrímsson lgfs
Arkarvogur 4 – íbúð 103
Glæsileg og vel skipulögð 3–5 herbergja íbúð með sér 2ja herbergja aukaíbúð.
Heildarstærð: 163,1 fm | 1. hæð | Verönd: 34,5 fm til suðursNánari lýsing:Aðalíbúð:Forstofa með parketi á gólfi og skáp.
Eldhús með eyju í
alrými með stofu/borðstofu og sjónvarpsstofu/heimaskrifstofu.Útgengt á 34,5 fermetra verönd til suðurs úr stofu.
Hjónaherbergi með parketi á gólfi og skápum.
Svefnherbergi II með parketi á gólfi.
Baðherbergi með sturtu upphengdu salerni og innréttingu
þvottahús með tengi fyrir þvottavél, þurkara og skolvask.
Aukaíbúð:Forstofa, með parketi á gólfi og skáp.
Eldhús með innréttingu ofni, helluborði, innbyggðum ísskáp og uppþvottavél.
Stofa/borðstofa, með parketi á gólfi.
(möguleiki er að bæta við fjórða svefnherberginu í hluta stofu).
Svefnherbergi III með parketi á gólfi og skáp.
Baðherbergi með sturtu, upphengdu salerni, innréttingu og tengi fyrir þvottavél/þurrkara.
Tvær íbúðirTilvalið til dæmis fyrir samsettar fjölskyldur þar sem börn eru á mismunandi aldri.
Núverandi eigendur settu upp hurð á milli íbúða svo hægt sé að loka á milli. Þau leigja stundum minni íbúð út á Aribnb.
Dýrahald er leyfilegt í Arkarvogi 2-8 samkvæmt eignaskiptasamningi.
Vogabyggð er skjólsæl perla á höfuðborgarsvæðinu í nálægð við hafið og náttúruna. Frábær kostur fyrir þá sem kjósa að búa í umhverfi sem býður bæði upp á borgarbrag og í senn sterka tengingu við náttúruna. Hjóla- og göngustígar liggja meðfram ströndinni sem og upp í Elliðaárdal. Þá er Laugardalurinn innan seilingar.
Loftljósin eru frá Lýsing og hönnun og eru loftljós í íbúðinni tengd snjalllýsingarkerfi frá Plejd sem gerir kleift að stjórna lýsingu á einfaldan og þægilegan hátt. Hægt er að dimma ljós, setja upp lýsingarsenur og stýra lýsingu bæði með hefðbundnum rofum og í gegnum snjallsímaforrit.
Parket frá Ebson - OCEAN 8+ XL Gyant XL Light Natural. Gluggatjöld í alrými og hjónaherbergi eru frá Glory Blinds. Eru á álbrautum og úr Hör.
Lyklalaust aðgengi um sameign. Dropar á lyklakippu til að opna hurðar. Myndavél sem les bílnúmer þegar ekið er inn í bílakjallara. Kóði í dyraíma til að opna hurð frá aðalinngangi. Í bílakjallara er svæði fyrir hjólageymslu með hjólagrind
Húsið er steinsteypt og útveggir einangraðir að utan, klæddir með báru-álklæðningum eða sléttum-álklæðningum sem tryggir lágmarks viðhald húsanna. Gluggar eru ál/tré kerfi og glerjaðir með K-gleri. Innveggir aðrir en steyptir eru úr hleðslusteini.