Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu virkilega fallegt, vandað, vel skipulagt og mikið endurnýjað 196,3 fermetra einbýlishús á einni hæð á mjög grónum, rólegum og eftirsóttum stað innst í götu á glæsilegri 741,0 fermetra afgirtri lóð við Aratún í Garðabæ. Bílskúrinn, sem er 35,7 fermetrar að stærð, hefur að hluta til verið innréttaður sem stúdíóíbúð.
Frá stofum og hjónaherbergi nýtur útsýnis út á Arnarnesvoginn og að Seltjarnarnesi.
Pétur Luthersson, innanhúss-arkitekt og húsgagnasmiður, teiknaði og hannaði húsið allt hið innra og hefur það fengið að halda þó nokkru af upprunalegum einkennum sínum þrátt fyrir mikla endurnýjun þess á sl. 20 árum. Í loftum eru víða virkilega falleg sérhönnuð ljós eftir Pétur og eru þau í anda þess tíma er húsið var byggt.
Eignin hefur verið mjög mikið endurnýjuð á sl. árum:
- Klóaklagnir undir húsi og út í götu og brunnur í lóð endurnýjaður árið 2000
- Þakkantur endurnýjaður árið 2000
- Ofnar að mestu endurnýjaðir
- Eldhúsinnrétting og tæki árið 2007
- Sólstofa byggð við húsið, opin við hol og með kamínu, árið 2013
- Baðherbergi árið 2020
- Hús að utan múrviðgert og málað árið 2023
- Harðviðarverönd til suðurs með sauna-húsi, heitum potti og útisturtu árið 2025
- Ný rafmagnstafla (3ja fasa) og rafhleðslustöð fyrir bíla árið 2026Lýsing eignar:Forstofa, parketlögð og með fataskápum.
Gestasnyrting, innaf forstofu er með glugga, flísalagt gólf og veggir.
Þvottaherbergi, stórt, flísalagt gólf og hluti veggja, góðar innréttingar og skápar, gluggi og útgengi á lóð.
Geymsla, innaf þvottaherbergi með glugga.
Hol, parketlagt og með búri innaf. Úr holi er gengið í eldhús, samliggjandi stofur, sólskála og inn á svefngang.
Eldhús, parketlagt og bjart með góðri borðaðstöðu. Mjög falleg innrétting úr hnotu með burstuðu stáli á borðum og góðu borðplássi, flísum á milli skápa, vandaðri SMEG samstæðu með gashelluborði og innbyggðri uppþvotttavél.
Samliggjandi stofur, stórar, bjartar og parketlagðar með stórum gluggum til suðurs og vesturs og fallegu útsýni út á sjóinn.
Sólskáli, opinn við hol, flísalagður og með gólfhita og fallegri kamínu. Úr sólskála er útgengi um tvöfalda rennihurð á skjólsæla og stóra harðviðarverönd til suðurs og þaðan á lóð þar sem eru m.a. heitur pottur, sauna-hús og útisturta.
Svefngangur, parketlagður.
Baðherbergi, með glugga, flísalagt gólf og veggir, vegghengt wc., handklæðaofn, flísalögð sturta með sturtugleri og innrétting.
Barnaherbergi I, sísal-teppalagt.
Barnaherbergi II, sísal-teppalagt.
Barnaherbergi III, sísal-teppalagt.
Hjónaherbergi, sísal-teppalagt og rúmgott með fataskápum.
Bílskúr: fremri hluti bílskúrs er með bílskúrshurð á rafmótor, rennandi heitu og köldu vatni og gluggum og er nýttur sem geymsla. Innri hluti bílskúrs er með gönguhurð af baklóð og góðum gluggum og er nýlega innréttaður sem stúdíóíbúð. Rýmið skiptist í sísalteppalagt herbergi með eldhúsinnréttingu á einum vegg og baðherbergi sem er flísalagt í gólf og veggi með vegghengdu wc., gólfhita, handklæðaofni og flíslagðri sturtu með sturtugleri.
Lóðin, sem er 741,0 fermetrar að stærð, er virkilega glæsileg. Á framlóð eru hellulögð stétt og flísalagðar útitröppur með hitalögnum í, stór steypt innkeyrsla með hitalögnum undir og fallegur trjágróður. Á baklóð hússins eru stór og skjólsæl harðviðarverönd, tyrfðar flatir, hellulagðir stígar, fallegur trjágróður, geymsluskúr og önnur verönd með heitum potti, nýlegu sauna-húsi og nýlegri útisturtu.
Húsið að utan lítur vel út og er nýlega múrviðgert og málað.
Staðsetning eignarinnar er virkilega góð á grónum og skjólsælum stað miðsvæðis þaðan sem stutt er í skóla, leikskóla, íþróttasvæði Stjörnunnar, Sundlaug Garðabæjar, verslanir, þjónustu og út á aðalbraut.
Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu fastmark@fastmark.is