Valhöll fasteignasala kynnir:
Rúmgóða 71,8 fm íbúð á þriðju (efstu) hæð í góðu lyftuhúsi við Andrésbrunn 16 í Reykjavík.
Komið er samþykkt kauptilboð í eignina.
Þvottahús innan íbúðar.
Stórar suðursvalir.
Fallegt útsýni.
Eignin er laus og afhendist við undirritun kaupsamnings.Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, eitt svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu.Nánari lýsing:Komið er inn í
forstofu með parketi á gólfi og fataskápum.
Stofan er með parketi á gólfi og þaðan er útgengt á
rúmgóðar suðursvalir.
Eldhúsið er með fallegri innréttingu og parketi á gólfi.
Rúmgott svefnherbergi er með góðum fataskápum og parketi á gólfi.
Baðherbergið er flísalagt með sturtu, handklæðaofni, upphengdu salerni og innréttingu.
Rúmgott
þvottahús innan íbúðar.
Í sameign í kjallara er 8,9 fm
sérgeymsla íbúðar ásamt sameiginlegum rýmum.
Lóð og sameign er snyrtileg. Búið er að koma fyrir rafhleðslustöðvum á bílastæði hússins.
Endurbætur:Skipt var um þakdúk á allri húslengjunni árið 2019. Þá voru gluggar málaðir og húsið sílanborið á árunum 2023-2024.
Nánasta umhverfi: Örstutt í skóla og leikskóla. Einnig stutt í verslun, þjónustu og almenna útivist. Mjög góðar göngu- og hjólaleiðir eru við Reynisvatnsás og næsta nágrenni. Stutt að Dalslaug og að íþróttasvæði Fram í Úlfarsárdalnum.
Nánari upplýsingar veitia:
Hörður Sverrisson, lgf í s 899-5209 og á netfanginu hordur@valholl.is
Óskar H. Bjarnasen fasteignasali / lögmaður í síma 691-1931 eða á netfanginu oskar@valholl.is