Pálsson Fasteignasala kynnir:
-Bílskúr og einkabílastæði
-Jarðhæð með sérinngangi
-Skjólgóður afgirtur sólpallur
-Þrjú rúmgóð svefnherbergiÍbúðin er á neðri hæð í tvíbýli, skráð 134,3 fm samkvæmt HMS auk 26,0 fm bílskúrs og er eignin því samtals 160,3 fm.
Skjólgóður sólpallur er að framanverðu og á suðurhlið hússins.
Úr stofu, eldhúsi og frá sólpalli er útsýni yfir Elliðavatn og upp til Bláfjalla.
Þrjú svefnherbergi, öll með loftháum skápum.
Þvottahús og rúmgóð geymsla í sér rýmum.
Baðherbergi er með baðkari og sturtu, auk þess er gestasalerni inn af forstofu.
Eikarparket er á gólfum í stofu og herbergjum, flísar í votrýmum, eldhúsi og forstofu.
Húsið er steinað og viðhaldlétt og nýlega sílanborið.
Gluggar málaðir nýlega og botnstykkin úr viðhaldsléttu áli.
Bílskúr með rafmagnsopnara er í bílskúrslengju með einkastæði fyrir framan og einnig sameiginleg bílastæði á lóð.
Stutt að sækja í íþróttir og útivist með góðum gönguleiðum.
Útivistarparadís á borð við Elliðavatn, Guðmundarlund og Víðidal í næsta nágrenni.
Matvöruverslun og önnur þjónusta skammt undan.
Nánari upplýsingar veitir:Ævar Jóhanns Lgf. s: 861-8827 eða aj@palssonfasteignasala.isNánari lýsing:
Gengið er inn í flísalagða
forstofu með góðu skápaplássi.
Inn af forstofu er flísalagt
gestasalerni með vask, upphengdu salerni og glugga með opnanlegu fagi.
Eldhús, stofa og borðstofa eru í einu flæði með skilrúmsvegg sem klæddur hefur verið með hljóðvistunarplötum.
Eldhús er flísalagt og innrétting er lökkuð svört með innfelldum ísskáp og uppþvottavél. Span helluborð og bakaraofn í vinnuhæð. Steinborðplata er á innréttingunni.
Stofan er stór og björt og rúmar vel borðstofu og betri stofu eða sjónvarpsaðstöðu. Úr henni er útgengt út á sólríka
timburverönd.
Rúmgóð
geymsla er innan íbúðar.
Svefnherbergin eru þrjú.
Hjónaherbergi er parketlagt og stórt með skápavegg.
Bæði barna/gestaherbergin eru parketlögð, rúmgóð með loftháum skápum.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, útbúið innfelldum skáp, baðkari og walk in sturtu og glugga með opnanlegu fagi. Vaskinnrétting með skúffum, handklæðaofn og upphengt salerni.
Þvottahús er flísalagt, rúmgott með innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð, vaski og glugga með opnanlegu fagi.
Bílskúr er í bílskúrslengju, epoxy á gólfi með rafmagnsopnara.
Sameiginleg lóð.www.eignavakt.iswww.verdmat.is Góð ráð fyrir kaupendur / seljendurGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.