Lind fasteignasala og Ómar Hvanndal lögmaður og lögg. fasteignasali kynna til sölu 72,5 fermetra 3ja herbergja íbúð á 4. hæð við Álftamýri 18 í Reykjavík. Allar nánari upplýsingar veitir Ómar Hvanndal í síma 832-3200 eða omar@fastlind.isNánari lýsing: Forstofa með parketi á gólfi og fatahengi.
Hjónaherbergi er rúmgott með parketi á gólfi og fataskápum.
Barnaherbergi með parketi á gólfi.
Baðherbergið með flísum á gólfi og á veggjum að hluta. Flísalögð sturta með glerskilrúmi og vegghengt salerni.
Eldhús með parketi á gólfi. Þar er hvít innrétting og borðkrókur.
Rúmgóð stofa með parketi á gólfi. Úr stofu er útgengt út á svalir til suðurs.
Eigninni fylgir 4,5 fermetra geymsla í kjallara. Þar er einnig sameiginlegt þvottahús ásamt sameiginlegri hjóla og vagnageymslu.
Eignin er vel staðsett, stutt er í allar helstu stofnbrautir, Álftamýrarskóli og íþróttasvæði Víkings í Safamýri eru í stuttri göngufjarlægð sem og Kringlan og Laugardalurinn ásamt því að öll helsta þjónusta er í næsta nágrenni.
Íbúðin er í útleigu og möguleiki er á því fyrir kaupendur að framlengja þann samning.
Á undanförnum árum hefur verið farið í eftirfarandi framkvæmdir.
2020 rafmagn yfirfarið inní íbúð og ný rafmagnstafla sett upp í íbúðinni
2018 þakjárn endurnýjað og skorsteinn fjarlægður,
2017 ný hellulögn með snjóbræðslu,
2015 sameiginleg rafmagnstafla endurnýjuð
2013 skólplögn fóðruð drenað og skipt um niðurföll í sameiginlegum rýmum
Allir kaupendur okkar fá Vildarkort Lindar. Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá 9 samstarfsaðilum: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan,
Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak og Dorma.
Nánari upplýsingar veitir Ómar Hvanndal löggiltur fasteignasali og lögmaður, í síma 832-3200 eða omar@fastlind.is.-----------------------------------------------------------------------
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila
Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.