*** Bókið einka skoðun í 844-6516 eða ***Fasteignasalan TORG kynnir: Björt, falleg og rúmgóð 6 herbergja íbúð með suðursvölum á þessum eftirsótta stað, Álfheimar 68 í Laugardalnum. Um er að ræða eign sem er skráð 132,6 fm með 4 svefnherbergjum, stofu, borðstofu, eldhúsi, tvennum svölum, geymslu o... Sýna meira
*** Bókið einka skoðun í 844-6516 eða ***Fasteignasalan TORG kynnir: Björt, falleg og rúmgóð 6 herbergja íbúð með suðursvölum á þessum eftirsótta stað, Álfheimar 68 í Laugardalnum. Um er að ræða eign sem er skráð 132,6 fm með 4 svefnherbergjum, stofu, borðstofu, eldhúsi, tvennum svölum, geymslu og baðherbergi. Herbergi á jarðhæð fylgir íbúðinni með aðgang að sturtu og salernisaðstöðu. Mikil þjónusta er í nágrenninu. Göngufæri er í skóla, leikskóla, verslanir og veitingahús. Laugardalurinn er eitt vinsælasta útivistarsvæði Reykjavíkur en þar má meðal annars finna Laugardalslaugina, Laugardalshöllina, Grasargarð Reykjavíkur, Skautahöllina og Fjölskyldu- og húsdýragarðinn.Allar nánari upplýsingar veitir Ragnar Guðmundsson löggiltur fasteignasali í 844-6516 eða Nánari lýsing:Anddyri: Komið er inn í anddyri með loftháum fataskáp. Harðparket á gólfi.Svefnherbergi: Innan íbúðar eru þrjú svefnherbergi með harðparketi á gólfum. Einnig er herbergi á jarðhæð sem hefur verið notað til útleigu. Hjónaherbergið er með stórum fataskápum og útgengi á svalir. Stofa og borðstofa: Rúmgóðar og bjartar samliggjandi stofur. Harðparket á gólfum. Útgengt á suðursvalir. Stórir gluggar sem snúa til suðurs og austurs.Eldhús: Sjarmerandi retro innrétting með ljósri borðplötu. Stór gluggi með opnanlegu fagi. Stæði fyrir uppþvottavél. Inngengt er í þvottaherbergið frá eldhúsi.Þvottaherbergi: Sérþvottaherbergi er innan íbúðar með tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf með dökkum flísum á gólfi og ljósum flísum á veggjum. Sturta, upphengt salerni og ný falleg hvít innrétting með handlaug. Geymsla: Eigninni fylgir 14,8 fm. geymsla á jarðhæð.Aukaherbergi: Með íbúðinni fylgir auka herbergi á jarðhæð með gluggum sem snúa í tvær áttir. Aðgangur að sameiginlegu sturtu og salernisaðstöðu á jarðhæð.Niðurlag: Falleg og vel staðsett eign á vinsælum stað þar sem stutt er í skóla, leikskóla, verslanir, gönguleiðir og eitt vinsælasta útivistarsvæði Reykjavíkur. Allar nánari upplýsingar veitir Ragnar Guðmundsson löggiltur fasteignasali í gsm 844-6516 eða Fáðu frítt söluverðmat fyrir eignina þína hér.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila. 2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.500 af hverju skjali.3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.Skoðunarskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram komaí söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegirog sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.