Rúmgóð 4 herbergja íbúð í fjölskylduvænu hverfi við LaugardalinnTinna Bryde löggiltur fasteignasali og Háborg fasteignasala kynna 116,5 fm íbúð á 4. hæð við Álfheima 28. Um er að ræða bjarta og rúmgóða íbúð með svölum til suð- vesturs, góðu skipulagi og einstaklega fjölskylduvænni staðsetningu í grónu hverfi.
- Frábær staðsetning
- Töluverðar framkvæmdir á húsinu að mestu lokið
- Rúmgóð herbergi
- Hleðslustöðvar á bílastæðiNánari upplýsingar um eignina veitir
Tinna Bryde löggiltur fasteignasali í síma
660-5532 eða á
tinna@haborg.isEignin er skráð 116,5 fm samkvæmt HMS, þar af er 8,5 fm sérgeymsla.
Nánari lýsing:Forstofa: Flísalögð forstofa
Stofa: Rúmgóð og björt stofa með parketi á gólfi og útgengi á svalir. Fallegt alrými með góðu flæði og mikilli birtu.
Svalir: Svalir til suð- vesturs með útgengi bæði úr stofu og herbergi.
Eldhús: Rúmgott eldhús með hvítri innréttingu og eldhúseyju. Gott vinnupláss og notalegt rými fyrir matargerð og samveru.
Herbergi: Þrjú rúmgóð herbergi með parketi á gólfi. Fataherbergi er í einu herbergjanna og útgengi á svalir.
Baðherbergi: Baðherbergi með baðkari, innréttingu og tengi fyrir þvottavél.
Sérgeymsla í sameign í kjallara og einnig er
geymslurými innan íbúðar.
Sameiginleg vagna-og hjólageymsla, einnig er sameiginlegt þvottahús og þurrkherbergi
Húsfélag og framkvæmdir:Á undanförnum árum hefur verið farið í umfangsmiklar framkvæmdir á húsinu í kjölfar ástandsskoðunar:
2026 — Tvær hleðslustöðvar settar upp fyrir bílastæði
2026 — Svalagólf slípuð, epoxy málun
2025 — Ytra byrði múrviðgert og húsið málað
2025 — Tröppur múraðar og útidyrahurðir endurnýjaðar
Húsið:Álfheimar 28 eru hluti af stærra fjölbýli við Álfheima 26–30. Húsið sjálft er fimm hæða fjölbýlishús með 12 íbúðum í stigagangi og alls eru 38 íbúðir í heildarfjölbýlinu.
Sameign hússins er snyrtileg og vel við haldið og er reglulegt þrif innifalið í húsfélagsgjöldum. Aðkoma að húsinu er góð og er snjóbræðsla í hellulögn við inngang og meðfram húsinu. Garður og sameiginleg útisvæði eru gróin og vel hirt.
Góð bílastæðaaðstaða er bæði framan við húsið og við austurenda þess.
Staðsetning:Einstaklega fjölskylduvæn staðsetning í grónu hverfi við Laugardalinn. Langholtsskóli er í aðeins tveggja mínútna göngufæri án þess að fara þurfi yfir götu og fjórir leikskólar eru í göngufæri.
Álfheimakjarninn með bakaríi, kjörbúð og ísbúð er í örstuttu göngufæri og Glæsibær aðeins um fimm mínútur frá með fjölbreyttri þjónustu.
Laugardalurinn er svo beint við hliðina með útivist, leiksvæðum, frisbígolfvelli, Grasagarðinum og Fjölskyldu- og húsdýragarðinum.
Nánari upplýsingar um eignina veitir
Tinna Bryde löggiltur fasteignasali í síma
660-5532 eða
tinna@haborg.isGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.